Sölvi, Hjálmar og Helgi ræddu um heilsuna hjá Þrótti UMFÍ 29. maí 2020 10:40 Hreyfivika UMFÍ. Helgi Jean Claessen Hjálmar Jóhannsson og Sölvi Tryggvason fluttu erindi á fræðslukvöldi Ungmennafélagsins Þróttar Vogum. UMFÍ „Ef ég set líkama minn í mikið ójafnvægi oft á dag, þá er tómst mál að tala um gott andlegt jafnvægi,“ segir fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason, sem hefur getið sér gott orð fyrir heilsuráðleggingar. Hann var með erindi á fræðslukvöldi Ungmennafélagsins Þróttar Vogum ásamt þeim Helga Jean Claessen og Hjálmari Jóhannssyni, sem fjölluðu um tækifærin og ánægjuna. Fræðslukvöldið var liður í flottri dagskrá Þróttar í Hreyfiviku UMFÍ sem nú stendur yfir. Sölvi Tryggvason fjallaði um leit sína að betri heilsu og auknum lífsgæðum.UMFÍ Sölvi er höfundur bókarinnar á Eigin skinni. Þar, eins og í fyrirlestrinum hjá Þrótti, fjallar hann um leit sína að betri heilsu og auknum lífsgæðum. Hann segir frá fjölmörgum tilraunum sem hann gerði á sjálfum sér í mataræði og hreyfingu, föstum, hugleiðslu og fleiru sem tengist málinu. Sölvi var á sömu vegferð í fyrirlestrinum hjá Þrótti. Hann sagði frá þeim erfiðleikum sem hann gekk í gegnum sem fjölmiðlamaður og leit sinni að betra og heilsusamlegra lífi, bæði líkamlega og andlega. M.a. sagði hann frá því að þegar hann hafi leitað til lækna hafi hann aldrei verið spurður út í hluti sem tengjast líkamsstarfsemi og áhrifum á andlega heilsu, svo sem tengsl mataræðis, hreyfingar og kvíða, streitu og athyglisbrest. Sölvi nefndi sem dæmi mikilvægi svefns. Lykillinn að góðum svefni geti verið aðdragandi hans, svo sem hvað hann borði áður en hann fer að sofa. Hann hafi sem dæmi sofið illa um páskana og ekki hvílst. Ástæðan fyrir því hafi verið að hann hafi borðað hálft páskaegg eftir miðnætti. Neysla á því, gosdrykkjum, kaffi og fleiru hafi neikvæð áhrif á svefn og þar með andlega heilsu. Hvað svefninn snerti sagði Sölvi mun fleiri gera sér grein fyrir mikilvægi hans fyrir heilsuna en fyrir fimm árum. Á hinn bóginn geri fólk lítið meðvitað til að bæta hann. Að lokum skoraði hann á fólk að skoða hreyfingu sína og næringu, svefn og fleiri þætti og verða meðvitaðri um heilsu sína og andlegt heilbrigði. Fyrirlesturinn var vel sóttur í Vogum og ánægja með fyrirlestrana, sem styrktir voru af Fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ. UMFÍ vill að allir landsmenn finni sína uppáhalds hreyfingu og setji mynd af sér inn á Instagram með myllumerkinu #mínhreyfing sem hvatningu fyrir aðra. Dregið verður úr innsendum myndum og eru gjafir frá Farm Hotel Efstadal í verðlaun. Heilsa Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira
„
UMFÍ vill að allir landsmenn finni sína uppáhalds hreyfingu og setji mynd af sér inn á Instagram með myllumerkinu #mínhreyfing sem hvatningu fyrir aðra. Dregið verður úr innsendum myndum og eru gjafir frá Farm Hotel Efstadal í verðlaun.
Heilsa Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira