Ný og endurbætt vörulína frá innocent innocent 4. júní 2020 13:20
innocent hefur sett á markað endurbætta línu af smoothies. Þeir eru litríkari og næringarríkari og eru auk þess í umhverfisvænni umbúðum. innocent hefur ekki aðeins bragðbætt vöruna heldur var lögð áhersla á að hún væri hollari en áður. Núna er tvöfalt meira af vítamínum í hverjum smoothie. Í flestum tegundum er meira af trefjum og minna af ávaxtasykri og þar af leiðandi færri hitaeiningar í hverri flösku. Nú getur þú t.d. fengið þér smoothie með haframjöli, bláu spirulina eða góðgerlum. Bragðtegundirnar eru sjö og hægt að velja smoothie fyrir öll tilefni dagsins. innocent Up & Oat er glæný tegund og er með höfrum, kanil, eplum og banana og hentar frábærlega til að grípa með sér á ferðinni sem morgunmat eða millimál. Viðtökur tónleikagesta kveikjan að fyrirtækinu innocent er rótgróið framleiðslufyrirtæki á söfum og smoothies. Fyrirtækið varð til árið 1999 á lítilli tónlistarhátíð í London þar sem þrír vinir seldu smoothies. Þeir settu upp stórt skilti og spurðu tónlistargesti hvort þeir ættu að hætta í fastri vinnu til þess að halda áfram eingöngu að búa til smoothies. Einnig settu þeir upp tvær ruslafötur merktar annarsvegar Já og hinsvegar Nei þar sem fólk átti að henda flöskunni til að gefa svar við spurningunni. Ekki stóð á vinsældunum. Já-fatan var stútfull eftir daginn og þar með byrjaði saga innocent. Í dag er innocent leiðandi drykkjarvörufyrirtæki í Evrópu. Starfsmaður innocent í Kenya. Í 16 ár hefur innocent gefið 10% af öllum hagnaði til góðgerðarmála. 10 % renna til góðgerðarmála Hjá innocent einblína menn ekki aðeins á að búa til safa og smoothies heldur vilja þeir líka gera heiminn að betri stað. Í 16 ár hefur innocent gefið 10% af öllum hagnaði til góðgerðarmála til að koma í veg fyrir hungursneyð. Fyrirtækið beinir einnig öllum viðskiptum sínum að „fairtrade“ og gæðavottuðum býlum og notar eingöngu hráefni sem standast strangar gæðakröfur. Heimsóknir á býlin ásamt gæðavottun eru lykillinn að góðu samstarfi milli innocent og ræktandans. Umhverfisvænni umbúðir Nýju smoothie flöskurnar eru umhverfisvænni en áður og eru úr 50% endurvinnanlegu plasti. innocent er annt um jörðina og umhverfið og stefnt er að því að notast aðeins við flöskur úr 100% endurvinnanlegu plasti fyrir árið 2022. innocent hvetur þig til að skila hverri flösku af innocent smoothie í næstu endurvinnslustöð. Enginn viðbættur sykur innocent er alltaf án viðbætts sykurs og er einfaldlega ávextir í flösku með viðbættum vítamínum. Því þurfa drykkirnir að geymast í kæli. innocent fæst í öllum helstu matvöruverslunum landsins.
Heilsa Matur Drykkir Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Fleiri fréttir Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira