Segir að Jordan KA-liðsins gæti lent í vandræðum án Pippen Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. júní 2020 13:00 Jordan og Pippen KA-liðsins, þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Elfar Árni Aðalsteinsson. vísir/bára
Sigurvin Ólafsson, einn sérfræðinga Stöðvar 2 Sports um Pepsi Max-deild karla, kom með skemmtilega samlíkingu í þriðja upphitunarþætti fyrir Pepsi Max-deildina í gær. Hann sagði þá að Hallgrímur Mar Steingrímsson væri Michael Jordan KA-liðsins á meðan Elfar Árni Aðalsteinsson væri Scottie Pippen. Elfar Árni sleit krossband í vetur og verður ekkert með KA í sumar. Jordan verður því að spjara sig án Pippens fyrir norðan. „Af því sem ég sá síðasta sumar er hann algjör yfirburðamaður í þessu liði. Mér fannst hann bestur og allt snúast um hann,“ sagði Sigurvin um Hallgrím. „En svo ég haldi mig við þetta körfuboltagrín; ef hann er Jordan þá er Pippen farinn. Þeir voru eiginlega bara tveir að spila í fyrra. Pippen spilar ekki í sumar og Jordan er í basli.“ Guðmundur Benediktsson tók samlíkingu Sigurvins lengra og spurði hvort Almarr Ormarsson, fyrirliði KA, gæti ekki verið Dennis Rodman, þriðja hjólið undir Chicago Bulls-vagninum á árunum 1995-98. Hallgrímur skoraði tíu mörk fyrir KA á síðasta tímabili og Elfar Árni þrettán. Húsvíkingarnir skoruðu því samtals 23 af 34 mörkum KA-liðsins í Pepsi Max-deildinni í fyrra. Klippa: Pepsi Max-upphitun - Umræða um lykilmenn KA
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-mörkin KA Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir KA - ÍA | Tvö sem hafa valdið vonbrigðum Fram - Þór Ak. | Botnliðið í Úlfarsárdal KR - ÍBV | Funheitir Eyjamenn í Vesturbæ „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Tindastóll mætti ekki til leiks Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Sjá meira