Annie Mist segir fólk reitt og sárt: „Held að hann verði að hlusta“ Sindri Sverrisson skrifar 9. júní 2020 22:00 Annie Mist Þórisdóttir vann heimsleikana í Crossfit árin 2011 og 2012. mynd/@anniethorisdottir
Annie Mist Þórisdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit, segir að íþróttin verði alltaf til staðar en það sé aðeins spurning hvort það verði áfram undir sama nafni, eftir rasísk ummæli Greg Glassman, stofnanda og framkvæmdastjóra Crossfit-samtakanna. Fjölmargar Crossfit-stöðvar í heiminum hafa slitið samstarfi við Crossfit-samtökin vegna Glassman. Hann svaraði Twitter-færslu Institute for Health Metrics and Evaluation, þess efnis að rasismi væri heilbrigðisvandamál, með því að skrifa „Það er FLOYD-19“, og vísa þannig í Covid-19 faraldurinn og lát George Floyd. .@CrossFitCEO: "I, CrossFit HQ, and the CrossFit community will not stand for racism. I made a mistake by the words I chose yesterday.My heart is deeply saddened by the pain it has caused. It was a mistake, not racist but a mistake.— CrossFit (@CrossFit) June 8, 2020 Glassman hefur beðist afsökunar á orðum sínum en það gæti dugað skammt og ljóst að kallað er eftir því að hann hverfi úr stjórn. Íþróttavöruframleiðandinn Reebok hefur ákveðið að slíta samstarfi sínu við Crossfit-samtökin og á meðal þeirra stöðva sem snúið hafa baki við samtökunum er Crossfit Reykjavík, þar sem Annie Mist er ein af eigendunum. Í viðtali við RÚV segir hún fólk hafa viljað sýna með skýrum hætti að Glassman nyti ekki stuðnings og að orð hans bæri að fordæma. „Þetta er eitthvað svo ótrúlega persónulegt fyrir manni. Ég er persónulega náttúrulega búin að leggja blóða, svita og tár í þetta og þykir svo ofboðslega vænt um þessa íþrótt. Það er sama í Crossfit Reykjavík, við erum búin að vera starfandi í mörg ár og maður vill vera í forsvari fyrir það sem Crossfit á að vera að standa fyrir. Við erum í rauninni að sýna það að við viljum ekki samþykkja að standa fyrir neitt þegar kemur að rasisma eða nokkurs konar mismunun á neinn máta,“ sagði Annie Mist við RÚV. „Hann [Glassman] þarf klárlega að hlusta á samfélagið og það er það flotta við CrossFit, sem maður er að sjá, að fólk er reitt, fólk er sárt en það eru eiginlega allir að koma saman og það sem maður sér standa upp úr er þetta samfélag, þessi stuðningur, að vinna saman að einhverju. Ég held að hann verði að hlusta á það og það verða að vera einhvers konar breytingar,“ sagði Annie Mist.
CrossFit Tengdar fréttir CrossFit Reykjavík segir skilið við CrossFit nema að það verði afgerandi breytingar CrossFit íþróttin stendur á krossgötum eftir kynþáttafordóma framkvæmdastjórans og íslenskar CrossFit stöðvar eru nú komnar í þann hóp sem heimta breytingar hjá höfuðstöðvunum í Bandaríkjunum. 9. júní 2020 09:30 Heimsmeistari kvenna hótar því að hætta að keppa í CrossFit Ástralinn og þrefaldi heimsmeistarinn Tia-Clair Toomey hefur hótað því að hætta að keppa á CrossFit mótum í framtíðinni taki forysta CrossFit samtakanna ekki betri ákvarðanir á næstunni. 9. júní 2020 08:30 Sara tjáir sig líka: CrossFit samfélagið er miklu sterkara en orð eins manns Sara Sigmundsdóttir sendi frá sér bæði hjarta og pistil á Instagram þar sem hún segir að CrossFit samfélagið eigi ekki að láta rasísk orð eins manns vera tákn um það sem CrossFit fólk heimsins stendur fyrir. 9. júní 2020 08:00 Framkvæmdastjóri CrossFit segist ekki vera rasisti en viðurkennir mistök Það er óhætt að segja að yfirstjórn CrossFit samtakanna hafi fengið á sig mikla skothríð eftir rasísk ummæli framkvæmdastjórans. Hann hefur nú beðist afsökunar og segist ekki vera rasisti. 8. júní 2020 11:52 Reebok segir bless við CrossFit vegna rasískra ummæla framkvæmdastjórans um George Floyd Framtíð heimsleikana í CrossFit gæti verið í uppnámi eftir að stærsti styrktaraðili þeirra í tíu ár ákvað óvænt að slíta samstarfinu. 8. júní 2020 09:30 Katrín Tanja: Skammast mín ákaflega mikið Íslenska CrossFit drottningin Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur ekki aðeins verið tilbúin að tjá sig um og styðja réttindabaráttu svartra heldur var hún einnig tilbúin að gagnrýna harðlega forystu CrossFit samtakanna fyrir þeirra rasísku viðbrögð. 8. júní 2020 07:30 Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann? Fær verðlaun sem bæði Messi og Ronaldo fengu á sínum tíma Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Einn sá besti færir sig um set Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Landsliðin undirbúa sig fyrir HM í beinni Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Hinn fjórtán ára Venni vann í Noregi Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Sjá meira
CrossFit Reykjavík segir skilið við CrossFit nema að það verði afgerandi breytingar CrossFit íþróttin stendur á krossgötum eftir kynþáttafordóma framkvæmdastjórans og íslenskar CrossFit stöðvar eru nú komnar í þann hóp sem heimta breytingar hjá höfuðstöðvunum í Bandaríkjunum. 9. júní 2020 09:30
Heimsmeistari kvenna hótar því að hætta að keppa í CrossFit Ástralinn og þrefaldi heimsmeistarinn Tia-Clair Toomey hefur hótað því að hætta að keppa á CrossFit mótum í framtíðinni taki forysta CrossFit samtakanna ekki betri ákvarðanir á næstunni. 9. júní 2020 08:30
Sara tjáir sig líka: CrossFit samfélagið er miklu sterkara en orð eins manns Sara Sigmundsdóttir sendi frá sér bæði hjarta og pistil á Instagram þar sem hún segir að CrossFit samfélagið eigi ekki að láta rasísk orð eins manns vera tákn um það sem CrossFit fólk heimsins stendur fyrir. 9. júní 2020 08:00
Framkvæmdastjóri CrossFit segist ekki vera rasisti en viðurkennir mistök Það er óhætt að segja að yfirstjórn CrossFit samtakanna hafi fengið á sig mikla skothríð eftir rasísk ummæli framkvæmdastjórans. Hann hefur nú beðist afsökunar og segist ekki vera rasisti. 8. júní 2020 11:52
Reebok segir bless við CrossFit vegna rasískra ummæla framkvæmdastjórans um George Floyd Framtíð heimsleikana í CrossFit gæti verið í uppnámi eftir að stærsti styrktaraðili þeirra í tíu ár ákvað óvænt að slíta samstarfinu. 8. júní 2020 09:30
Katrín Tanja: Skammast mín ákaflega mikið Íslenska CrossFit drottningin Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur ekki aðeins verið tilbúin að tjá sig um og styðja réttindabaráttu svartra heldur var hún einnig tilbúin að gagnrýna harðlega forystu CrossFit samtakanna fyrir þeirra rasísku viðbrögð. 8. júní 2020 07:30