Nýliðar Hattar frá Egilsstöðum sömdu við Ísafjarðartröllið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2020 13:37 Sigurður Gunnar Þorsteinsson í leik með ÍR í úrslitakeppninni 2019. Vísir/Vilhelm
Körfuboltamaðurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson skrifaði í dag undir samning við Hött um að spila með liðinu í Domino´s deild karla á komandi leiktíð. Miðherjinn öflugi Sigurður Gunnar Þorsteinsson var í dag kynntur á blaðamannafundi Hattar á Barion-Bryggjan brugghús út á Granda en þetta er svakalegur liðstyrkur fyrir nýliðana. Sigurður Gunnar Þorsteinsson er 32 ára gamall miðherji sem hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn með bæði Keflavík og Grindavík en hann fór einnig alla leið í lokaúrslitin með ÍR vorið 2019. Sigurður Gunnar hóf hins vegar ferillinn með KFÍ á Ísafirði og spilaði tvö fyrstu tímabilin sín í efstu deild með KFÍ frá 2003 til 2005. Þaðan lá leiðin til Keflavíkur og svo til Grindavík en hann hefur einnig reynt fyrir sér í atvinnumennsku í Svíþjóð og á Grikklandi. Sigurður Gunnar missti af öllu síðasta tímabili eftir að hann sleit krossband í fyrsta leik. Hann var með 14,6 stig og 8,9 fráköst að meðaltali með ÍR í deildarkeppninni 2018-19. Sigurður Gunnar yfirgaf ÍR eftir tímabilið og hefur nú fundið sér nýtt lið á Egilsstöðum. Sigurður Gunnar hefur spilað 264 leiki í úrvalsdeild karla og er í 15. sæti í fráköstum og í 4. sæti í vörðum skotum í sögu deildarinnar. Hann hefur sex sinnum farið alla leið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn með Keflavík (2008 og 2010), Grindavík (2012, 2013 og 2014) og ÍR (2019). Höttur var efst í 1. deild karla í vetur þegar leik var hætt vegna kórónuveirunnar og KKÍ ákvað að Höttur færi upp í Domino´s deildina. Þetta verður fjórða tímabil Hattar í úrvalsdeildinni en liðið hefur fallið á hinum þremur.
Dominos-deild karla Höttur Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira