Atli, Edit og Elsa til Icelandic Startups Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2020 10:50 Elsa Bjarnadóttir, Atli Björgvinsson og Edit Bjarnadóttir. Icelandic Startups
Atli Björgvinsson, Edit Ómarsdóttir og Elsa Bjarnadóttir hafa öll verið ráðin til Icelandic Startups til að efla stuðning við frumkvöðla og sprotafyrirtæki í þeim verkefnum sem framundan eru. Í tilkynningu frá félaginu segir að Atli hafi verið ráðinn markaðsstjóri félagsins. Hann sé menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri í markaðsdeild Vodafone, nú Sýnar, þar sem hann stýrði síðast markaðsstarfi Vodafone á Íslandi og bar ábyrgð á stórum sem smáum herferðum fyrirtækisins. „Þá munu Edit Ómarsdóttir og Elsa Bjarnadóttir taka við starfi verkefnastjóra. Edit lauk BSc prófi í tölvunarfræði með áherslu á lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019 og hefur síðan starfað sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá Origo. Edit vann að ýmsum rannsóknarverkefnum samhliða námi og átti sæti í stjórn /sys/tur félags kvenna í tölvunarfræði við HR. Teymið hennar Statum hlaut verðlaun í frumkvöðlakeppninni Gullegginu fyrir bestu stafrænu lausnina árið 2019. Elsa er menntuð í vefhönnun og -þróun og starfaði áður sem viðmótshönnuður fyrir Stafrænt Ísland hjá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún starfaði þvert á stofnanir ríkisins og kom meðal annars að því að innleiða nýtt ferli fæðingarorlofssjóðs. Elsa hefur einnig víðtæka reynslu af stjórnun reksturs og mannauðs- og markaðsmálum úr veitingageiranum,“ segir í tilkynningunni. Hlutverk félagsins er að skapa vettvang til tengslamyndunar og veita einstaklingum og teymum leiðsögn við mótun viðskiptaáætlana til að komast hratt að því hvort nægilegar viðskiptalegar forsendur séu til staðar og styðja þá við ferlið þar til vara er komin á markað.
Nýsköpun Vistaskipti Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira