HönnunarMars er enn í fullum gangi og dreifir sér um allan bæ. Á vefsíðu HönnunarMars er hægt að skoða gagnvirkt kort og líka skipta dagskránni upp eftir svæðum. Svæðin eru Garðabær, Grandi, Hafnarfjörður, Hafnartorg, Kvos í Mosfellsbæ, miðbær Reykjavíkur, Seltjarnarnesbær, Skeifan, Stór-Reykjavíkursvæðið og Þingholt.
Ýmsir vel valdir einstaklingar hafa sett saman sína hugmynd af dagskrá fyrir þá sem eru í leit að innblæstri. Nánar má lesa um það í HA fréttum á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Dagskráin telur um 80 sýningar og 100 viðburði en hér fyrir neðan má sjá opnanir og viðburði á HönnunarMars í dag en lista yfir allar sýningarnar sem eru í gangi um helgina, má finna á vefsíðu hátíðarinnar HÉR.
HönnunarMars Dagur 4 - Laugardagurinn 25. júní
12:00 – 17:00 Viðburður
Mói - börn hanna sokka hönnunarstúdíó
Mói, Laugavegur 30
-
12:00 – 17:00 Opnun
Ilmbanki íslenskra jurta
Nordic Angan, Álafossvegur 31, 270 Mosfellsbær
-
12:00 – 20:00 Opin vinnustofa
18:00 – 19:00 Opnun og leiðsögn
Skógarnytjar
Studio Björn Steinar, Bríetartún 13
-
12:00 – 20:00 Opin vinnustofa
18:00 – 19:00 Opnun og leiðsögn
Catch of the day: Limited Covid-19 edition
Studio Björn Steinar, Bríetartún 13
-
12:00 – 20:00 Opin vinnustofa
18:00 – 19:00 Opnun og leiðsögn
Plastplan
Plastplan, Bríetartún 13
-
13:00 – 15:00 Viðburður
Þykjó - Furðufuglar vinnusmiðja fyrir börn og fjölskyldur
Borgarbókasafn, Tryggvagata 15
-
14:00 – 16:00 Opnun
Circle
The Shed, Suðurgata 9, 220 Hafnarfjörður
-
14:00 – 17:00 – Viðburður
Búkolla – Búkolluteiti
Studíó, Grjótagata 6
-
14:00 - 15:00 Spjall
efni:viður – sýnendaspjall – Björn Steinar Blumenstein og Unndór Egill Jónsson
Hafnarborg, Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður
-
15:00 – 15:30 Viðburður
Peysa með öllu – Forvarnartískusýning í FLÆÐI Kolaportinu
og á instastory @yrurari
Flæði – Kolaportið, Tryggvagata 19
-
17:00 – 19:00 Viðburður
Meira og minna - HönnunarHappyHour
Sýningar á Meira og minna:
Silfra
Trophy
Hvenær verður vara að vöru?
Ótrúlegt mannlegt kolleksjón
Hafnartorg, Göngugatan á Hafnartorgi
HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.
HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.