Hverjir verða í vörn Víkings gegn Val? Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. júlí 2020 13:30 Það verður spennandi að sjá hvaða leikmenn verða í varnarlínu Víkings er Valur kemur í heimsókn í kvöld. Vísir/Bára
Það býður Víkinga ærið verkefni er Valur heimsækir Víkina í kvöld í 5. umferð Pepsi Max deildarinnar í fótbolta. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, þarf að búa til varnarlínu án sinna sterkustu varnarmanna. Þeir Kári Árnason, Sölvi Geir Ottesen og Halldór Smári Sigurðsson sáu allir rautt gegn KR á dögunum og eru því í leikbanni í kvöld. Leikurinn gegn KR tapaðist 2-0 sem þýðir að Víkingar hafa aðeins unnið einn af þeim fjórum leikjum sem þeir hafa leikið í deildinni í sumar. Liðið er í 8. sæti með fimm stig á meðan Valur er í 5. sæti með stigi meira. Víkingar verða án Sölva næstu tvo leiki til viðbótar eftir leik kvöldsins. Leikmaðurinn var dæmdur í þriggja leikja bann fyrir ummæli sem hann lét falla eftir að hafa verið rekinn út af um helgina. Þessir þrír verða ekki með Víkingum í kvöld.Vísir/Vilhelm Þá er Ingvar Jónsson, markvörður, mögulega enn frá vegna meiðsla og munar um minna. Rétt áður en félagaskiptaglugginn hér á landi lokaðist þá ákvað Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, að lána vinstri bakvörðinn Loga Tómasson í FH. Þar með fækkar möguleikum Víkinga varnarlega en þeir sáu eflaust ekki fyrir að vera án Kára, Sölva Geirs og Halldórs Smára í einum og sama leiknum. Það er svo gott sem hægt að útiloka að Arnar hendi miðvörðum 2. flokks Víkinga í djúpu laugina þar sem að Patrick Pedersen – framherji Vals – er ekkert lamb að leika sér við. Þá spilar eflaust inn í að 2. flokkur Víkinga situr á botni A-deildar og hefur fengið á sig 22 mörk í aðeins sex leikjum. Tómas Guðmundsson er eini leikfæri miðvörður Víkings í kvöld. Tómas hætti í fótbolta árið 2016 en tók skóna að nýju fram í vetur og hefur leikið einn leik í sumar. Var það í 1-1 jafntefli Víkings gegn nöfnum sínum frá Ólafsvík í Mjólkurbikarnum. Tómas fær nú það verkefni að reyna stöðva áðurnefndan Pedersen. Þá kemur Dofri Snorrason til greina, sérstaklega ef Víkingar ætla að spila með þrjá miðverði. Arnar Gunnlaugsson hefur áður líkt Dofra við Philip Lahm en sá magnaði leikmaður lék einstaka sinnum í miðverði eða á miðjunni hjá Bayern Munich undir stjórn Pep Guardiola. Dofri er fjölhæfur leikmaður sem hefur spilað í bakverði, á kantinum sem og á miðjunni í gegnum feril sinn. Það kæmi því raunar lítið á óvart ef honum yrði stillt upp í miðverði, öðru hvoru megin við Tómas. Verður Dofri Snorrason í miðverðinum í dag?Vísir/Bára Vinstri bakvörðurinn Atli Barkarson kom inn af varamannabekknum í 4-1 sigri Víkings á FH. Gæti farið svo að hann taki stöðu vinstri bakvarðar eða vængbakvarðar í dag, eftir því hvað leikkerfi Víkingar munu spila. Bjarni Páll Linnet Runólfsson og Halldór Jón Sigurður Þórðarson eru leikmenn sem hafa leyst stöður í vörninni áður en það er spurning hvort Arnar treysti þeim einfaldlega til að stöðva sóknarleik Vals í kvöld. Davíð Örn Atlason gæti þá leikið stöðu miðvarðar – í þriggja manna varnarlínu – en blaðamaður telur ólíklegt að þjálfari Víkinga sé tilbúinn fórna Davíði Erni í þá stöðu. Hann er af mörgum talinn einn besti hægri bakvörður deildarinnar og myndu Víkingar sakna hans of mikið sóknarlega ef hann yrði settur í miðvörð. Þá hefur komið upp sú umræða að færa Júlíus Magnússon, sem venjulega leikur á miðri miðjunni, niður í miðvörðinn. Arnar Gunnlaugsson hefur eflaust legið andvaka undanfarnar nætur yfir stöðunni. Júlíus í leiknum gegn KR í Meistarakeppni KSÍ.Vísir/HAG Nikolaj Andreas Hansen, sem venjulega leikur framarlega á miðjunni, gæti svo reynst ágætis kostur í miðvörðinn en hann er bæði stór og sterkur þó hægur sé. Hvað Arnar ákveður kemur í ljós klukkan 17:00 en leikurinn hefst klukkutíma síðar, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Sölvi Geir fær þrjá leiki í bann Sölvi Geir Ottesen leikmaður Víkings Reykjavík í Pepsi Max deild karla hefur hlotið þriggja leikja leikbann. Sölvi fékk rautt spjald í leik KR og Víkings um helgina og lét síðan óviðeigandi ummæli falla í garð fjórða dómara leiksins. 7. júlí 2020 17:02 Telja rauðu spjöldin ekki hafa átt rétt á sér | Sölvi Geir biðst afsökunar Knattspyrnudeild Víkings gaf frá sér yfirlýsingu varðandi rauðu spjöldin sem liðið fékk í 2-0 tapi gegn KR í Pepsi Max deildinni um helgina. 6. júlí 2020 14:50 Ósáttur Kári: Dómararnir eyðilögðu leikinn Kári Árnason, varnarmaður Víkings, er harðorður í samtali við Fótbolti.net um rauðu spjöldin sem bikarmeistararnir fengu í meistaraslagnum gegn KR um helgina. 6. júlí 2020 14:11 Eftirminnilegur tímamótaleikur hjá Kára Leikur KR og Víkings í Pepsi Max deildinni um helgina var merkilegur fyrir margar sakir. Leikurinn markaði tímamót á ferli Kára Árnasonar. 6. júlí 2020 13:30 Arnar: Hver sem er getur séð að þetta voru ekki rauð spjöld Þjálfara Víkings fannst öll þrjú rauðu spjöldin sem hans menn fengu gegn KR ósanngjörn. 4. júlí 2020 19:54 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Víkingur 2-0 | Víkingar sáu þrjú rauð í tapi á Meistaravöllum KR vann 2-0 sigur á Víkingi í leik þar sem þrír reyndustu leikmenn Víkinga voru reknir af velli. 4. júlí 2020 20:12 Rúnar: Við fyrstu sýn voru þetta allt rauð spjöld Þrátt fyrir sigurinn á Víkingi var þjálfari KR langt frá því að vera sáttur með frammistöðu sinna manna. Hann sagði að rauðu spjöldin þrjú sem Víkingar fengu hafi verið rétt. 4. júlí 2020 20:07 Mest lesið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Íslenski boltinn „Ein leiðin að gera hann nógu fúlan til að heimta að fá að fara“ Enski boltinn Segir að Wirtz hafi verið plataður til Liverpool Enski boltinn Hetja Heimis Hallgríms var skúrkur um helgina Fótbolti Vilja ekki feta í fótspor Söru: „Aðrir hlutir skipta meira máli en peningar“ Fótbolti Handtekinn á flugvelli grunaður um nauðgun Enski boltinn Talar um Chapecoense-flugslysið í fyrsta sinn: „Skyndilega varð allt hljótt“ Sport Þurftu að teipa bikarinn eftir fagnaðarlætin Fótbolti Breyttur veruleiki íslensks íþróttafólks Sport 38 ára gamall Vardy í markastuði í Seríu A Fótbolti Fleiri fréttir Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Árni Snær áfram milli stanganna hjá Stjörnunni Frá Klaksvík á Krókinn Samningi Caulkers við Stjörnuna rift „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Sjá meira
Sölvi Geir fær þrjá leiki í bann Sölvi Geir Ottesen leikmaður Víkings Reykjavík í Pepsi Max deild karla hefur hlotið þriggja leikja leikbann. Sölvi fékk rautt spjald í leik KR og Víkings um helgina og lét síðan óviðeigandi ummæli falla í garð fjórða dómara leiksins. 7. júlí 2020 17:02
Telja rauðu spjöldin ekki hafa átt rétt á sér | Sölvi Geir biðst afsökunar Knattspyrnudeild Víkings gaf frá sér yfirlýsingu varðandi rauðu spjöldin sem liðið fékk í 2-0 tapi gegn KR í Pepsi Max deildinni um helgina. 6. júlí 2020 14:50
Ósáttur Kári: Dómararnir eyðilögðu leikinn Kári Árnason, varnarmaður Víkings, er harðorður í samtali við Fótbolti.net um rauðu spjöldin sem bikarmeistararnir fengu í meistaraslagnum gegn KR um helgina. 6. júlí 2020 14:11
Eftirminnilegur tímamótaleikur hjá Kára Leikur KR og Víkings í Pepsi Max deildinni um helgina var merkilegur fyrir margar sakir. Leikurinn markaði tímamót á ferli Kára Árnasonar. 6. júlí 2020 13:30
Arnar: Hver sem er getur séð að þetta voru ekki rauð spjöld Þjálfara Víkings fannst öll þrjú rauðu spjöldin sem hans menn fengu gegn KR ósanngjörn. 4. júlí 2020 19:54
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Víkingur 2-0 | Víkingar sáu þrjú rauð í tapi á Meistaravöllum KR vann 2-0 sigur á Víkingi í leik þar sem þrír reyndustu leikmenn Víkinga voru reknir af velli. 4. júlí 2020 20:12
Rúnar: Við fyrstu sýn voru þetta allt rauð spjöld Þrátt fyrir sigurinn á Víkingi var þjálfari KR langt frá því að vera sáttur með frammistöðu sinna manna. Hann sagði að rauðu spjöldin þrjú sem Víkingar fengu hafi verið rétt. 4. júlí 2020 20:07