Gústi Gylfa: Stíflan er brostin Smári Jökull Jónsson skrifar 8. júlí 2020 21:45 Ágúst Gylfason var ánægður eftir leik. vísir/vilhelm
Grótta sigraði Fjölni í Grafarvogi í dag 3-0 og var það fyrsti sigur Gróttu í sumar og þeirra fyrsti í efstu deild frá upphafi. „Við stigum stórt skref í síðasta leik, fullt af mörkum og eitt stig til okkar. Við fylgdum því eftir með frábærum sigri hér á Fjölnisvelli og ég er gríðarlega stoltur af liðinu,“ sagði Ágúst Gylfason þjálfari Gróttu eftir fyrsta sigur Seltirninga í efstu deild frá upphafi. „Við lögðum þetta 100% upp, leikmennirnir stóðu sig frábærlega vel og stuðningurinn var geggjaður. Þetta var okkar dagur.“ Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn þó svo að Grótta væri hættulegri aðilinn. Í síðari hálfleik keyrðu gestirnir hinsvegar yfir Fjölnismenn. „Leikplanið var gott og virkaði. Sóknarleikurinn var góður, varnarleikurinn góður. Það var frábært að halda hreinu því við höfum fengið mikið af mörkum á okkur, 12 mörk hingað til. Gott að halda hreinu. Það var mikilvægt í lokin að klára það og við gerðum það vel.“ Grótta skoraði ekki í fyrstu þremur leikjum sínum í Pepsi Max-deildinni en hafa hinsvegar skorað sjö mörk í þeim síðustu tveimur, fjögur gegn HK og nú þrjú gegn Gróttu. „Stíflan er brostin. Við erum búnir að finna mark andstæðinganna. Ætli það sé ekki bara málið,“ sagði Ágúst og glotti þegar hann var spurður hvort svartar spár ýmissa sérfræðinga um markaleysi hefðu kveikt í liðinu. „Erum við ekki búnir að svara því vel?,“ sagði Ágúst. Með sigrinum fer Grótta úr fallsæti en Ágúst var ekkert kominn of langt í huganum. „Þrátt fyrir að við fögnum þessum sigri þá erum við ekki orðnir neinir heimsmeistarar, það er ljóst. Við þurfum að halda áfram og á þessari braut þá getum við náð okkar markmiðum.“
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Grótta Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira