Macron ver ráðherra sem er sakaður um nauðgun Kjartan Kjartansson skrifar 14. júlí 2020 16:29 Frá mótmælum gegn skipan nýs innanríkisráðherra í Frakklandi sem er sakaður um nauðgun fyrir rúmum áratug. Vísir/EPA
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, varaði við því að nýskipaður innanríkisráðherra í ríkisstjórn hans ætti ekki að verða „fórnarlamb dómstóls götunnar“ vegna ásakana um að hann hafi nauðgað konu fyrir rúmum áratug. Hundruð kvenna hafa mótmælt skipan ráðherrans. Gerald Darmanin var gerður að innanríkisráðherra í uppstokkun á ríkisstjórn Macron á dögunum. Hann hefur hafnað ásökun konu sem segir hann hafa nauðgað sér þegar hún leitaði til hans um aðstoð við að hreinsa sakarskrá sína árið 2009. Málinu gegn Darmanin var vísað frá á sínum tíma eftir að forrannsókn var látin niður falla. Áfrýjunardómstóll í París skipaði fyrir um að málið skyldi rannsakað aftur þrátt fyrir að engin ný sönnunargögn hefðu komið fram í síðasta mánuði, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Mótmælendur kröfðust afsagnar Darmanin á götum Parísar í síðustu viku. Lögmenn Darmanin segja að ákvörðun dómstólsins í júní hafi verið formlegs eðlis. Hann hefði á móti lagt fram stefnu vegna meiðyrða. Macron segist hafa fundað með Darmanin um ásakanirnar. Í sjónvarpsviðtali í dag sagði forsetinn að lýðræðið breyti um eðli ef fólk verður að fórnarlambi götunnar eða samfélagsmiðla við ásökun. „Ég vil það besta fyrir landið okkar Frakkland, ég vil ekki það versta úr engilsaxnesku þjóðfélagi,“ sagði Macron.
Frakkland Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Sjá meira