Dularfull sprenging raskaði nætursvefni Vesturbæinga Sylvía Hall skrifar 20. júlí 2020 10:43 Miklar umræður hafa skapast á íbúahópi Vesturbæjar á Facebook þar sem flestir segjast hafa heyrt hvellinn við Vesturbæjarskóla og þar nálægt. Vísir/Vilhelm
Íbúar í Vesturbænum heyrðu háværa sprengingu við Vesturbæjarskóla um klukkan hálf eitt í nótt. Miklar umræður sköpuðust um málið í íbúahóp Vesturbæjar á Facebook og mátti lesa úr þeim að um mikinn hvell hafi verið að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu barst vissulega tilkynning um sprengingu í Vesturbænum. Lögreglumenn fóru á vettvang en sáu ekkert athugavert og því líklegt að um flugeld eða eitthvað slíkt hafi verið að ræða. Einn íbúi segir hljóðið hafa verið hræðilegt. Það hafi hljómað eins og það kæmi frá hringtorginu við JL-húsið og lýsir því sem „ærandi og óhugnanlegu“. Þá hafi sumir jafnvel vaknað upp úr værum nætursvefni vegna þessa. Líkt og áður sagði er talið að sprengingin hafi orðið við Vesturbæjarskóla og lýsir nágranni því að hafa séð reyk við skólann. Einn íbúi sem búsettur er á móti skólanum segir hljóðið hafa verið svo hávært að það hafi verið sem sprengingin væri inni í íbúðinni. Einhverjir segjast hafa heyrt hróp skömmu eftir hvellinn en stuttu síðar hafi allt verið með kyrrum kjörum.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira