Barði í glugga skartgripaverslunar með járnstöng Atli Ísleifsson skrifar 14. ágúst 2020 06:08 Maðurinn var handtekinn af lögreglu. Vísir/Vilhelm
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók um miðnætti mann sem hafði verið að berja í glugga skartgripaverslunar við Laugaveg í miðborg Reykjavíkur. Í skeyti frá lögreglu segir að þegar maðurinn hafi verið handtekinn hafi hann verið kominn í næstu götu. Mun hann hafa verið að slá járninu í bíla á leið sinni, að því er haft er eftir sjónarvotti. Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Heimsóttu 33 staði Einnig segir frá því að lögregla hafi verið inn á 33 staði til að kanna ráðstafanir þegar kemur að sóttvörnum og tveggja metra reglu. Alls þurftu tíu staðir að gera úrbætur og bæta skipulagið, en ekki voru neinir staðir heimsóttir þar sem ráðstafanir voru með öllu óviðunandi þannig að loka þyrfti. Alls voru því 23 staðir með sín mál í mjög góðu ástandi líkt og segir í skeyti lögreglu. Braut rúðu og átti við útihurð Á öðrum tímanum var tilkynnt um innbrot við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Þar var komið að manni þar sem hann var búinn að brjóta rúðu og að eiga við útihurð á kofa. Hann var sömuleiðis búinn að skemma tvær eftirlitsmyndavélar á svæðinu. Hann var handtekinn og gistir fangageymslu. Í dagbók lögreglu segir einnig frá slysi í Garðabæ þar sem bíl hafði verið bakkað úr stæði sem er að finna á rampi. Bílnum var hins vegar bakkað of langt þannig að hann fór niður tröppur á rampinum og stöðvaði við inngang að húsi. Tjón varð á bílnum, en ekki urðu miklar skemmdir á húsinu sjálfu þó að blómapottur hafi brotnað.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira