Liðsmenn Björgunarfélags Hornafjarðar björguðu hundi af flæðiskeri í Óslandi rétt fyrir hádegið í dag.
Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem auglýst er eftir eigandanum.
„Dýrið sem var kalt og hrætt, en er komið í hlýjuna á lögreglustöðinni á Höfn, þarf sárlega að finna eiganda sinn.“