Tíska og hönnun

Valdís Steinarsdóttir tilnefnd til Formex Nova verðlaunanna

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Valdís Steinarsdóttir hefur einnig verið tilnefnd til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.
Valdís Steinarsdóttir hefur einnig verið tilnefnd til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Aðsendar myndir/Hönnunarmiðstöð

Vöruhönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir hefur hlotið tilnefningu til sænsku hönnunarverðlaunanna Formex Nova 2020. Fimm hönnuðir eru tilnefndir og verðlaunin verða afhent þann 18. ágúst næstkomandi, við opnun Formex hönnunarsýningarinnar í Stokkhólmi. Verðlaunin eiga að efla og koma á framfæri norrænni hönnun.

„Valdís útskrifaðist frá vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands árið 2017 og er sjálfstætt starfandi hönnuður með aðalfókus á tilraunakennt efnisval með áherslu á endurvinnslu lífrænna efna,“ segir í tilkynningu frá Hönnunarmiðstöð Íslands. Valdís hefur meðal annars verið tilnefnd til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands og hún hlaut fyrstu verðlaun á Paris Design Forum.

„Það er mér ómetanleg hvatning að vera tilnefnd. Með vinnu minni hef ég haft að leiðarljósi að vekja fólk til umhugsunar um aðkallandi vandamál sem snerta okkur öll og hvetja til samtals um nýjar lausnir. Keppni á borð við Formex Nova gefur mér færi á að ná til mun fleiri en nokkru sinni fyrr og ég er gríðarlega þakklát fyrir það tækifæri,“ er haft eftir Valdísi um tilnefninguna.

Valdís Steinarsdóttir vakti athygli á Hönnunarmars 2019 fyrir umbúðarplast fyrir kjötvörur, úr dýrahúðum.Aðsend mynd

Valdís er ein þeirra hönnuða sem hlaut úthlutun listamannalauna fyrir árið 2020. Ásamt Valdísi eru tilnefnd til verðlaunanna þau Jan Klinger frá Svíþjóð, Stine Mikkelsen frá Danmörku, Sigve Knutson frá Noregi og Jukka Jokinen og Heikki Konu frá Finnlandi.


Tengdar fréttir

Þessi fá listamannalaun árið 2020

Listamannalaunum hefur nú verið úthlutað fyrir árið 2020. Til úthlutunar eru 1600 mánaðarlaun úr sex mismunandi sjóðum. Í launasjóðinn bárust 1543 umsóknir og sótt var um 11.167 mánuði. 325 umsækjendur fá listamannalaun að þessu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.