Gæti orðið sólarhringabið eftir því að komast á áfangastað Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. janúar 2020 09:58 Upplýsingafulltrúi Isavia gerði ekki ráð fyrir örtröð á flugvellinum nú líkt og fyrr í mánuðinum þegar óveður olli miklum röskunum á flugi. Í þetta skiptið væru farþegar upplýstir með góðum fyrirvara. Vísir/Vilhelm
Búið er að aflýsa nær öllu millilandaflugi um Keflavíkurflugvöll í dag vegna veðurs. Icelandair hefur aflýst öllu flugi sínu, sem og bróðurpartur erlendu flugfélaganna. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair gætu sumir farþegar þurft að bíða í nokkra sólarhringa eftir því að komast í flug, þó að reynt sé eftir fremsta megni að koma öllum á áfangastað eins fljótt og auðið er. Slæmu veðri er spáð um mestallt landið í dag. Suðvestan hvassviðri eða stormur með éljum verður viðvarandi meira og minna þangað til í nótt. Mjög blint verður í hryðjunum, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar, og gular viðvaranir eru í gildi alls staðar nema austanlands – og appelsínugul viðvörun á Vestfjörðum. Ekki búist við örtröð í þetta skiptið Mikil röskun er á samgöngum vegna stormsins í dag. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir í samtali við Vísi að nær öllum ferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hafi verið aflýst. Guðjón segir þó að einhverjum ferðum um Keflavíkurflugvöll hafi aðeins verið seinkað en farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með flugáætlunum á vef Isavia, þar sem þær eru uppfærðar í rauntíma. Samkvæmt upplýsingum á vef Air Iceland Connect má jafnframt gera ráð fyrir að innanlandsflug liggi að mestu niðri í dag en þegar þetta er ritað hefur engin vél farið í loftið það sem af er morgni og næstu upplýsinga að vænta klukkan 13:30. Inntur eftir því hvort búast megi við örtröð í flugstöðinni í Keflavík líkt og í óveðrinu sem gekk yfir landið fyrr í janúar, þegar mörgþúsund manns voru fastir á vellinum vegna röskunar á flugi, segir Guðjón að aðstæður nú séu öðruvísi. „Þar kom veðrið aftan að okkur og flugrekendum. Það sem er öðruvísi núna er að þessar spár hafa legið fyrir og flugfélögin hafa tekið ákvarðanir með góðum fyrirvara varðandi það að aflýsa eða breyta ferðum. Og flugfarþegar hafa verið upplýstir um þetta.“ Röskun á flugi Icelandair í dag mun hafa áhrif á ríflega 3000 farþega.Vísir/Vilhelm Ný flug og tilfærslur Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, forstöðumaður þjónustu og upplifunar hjá Icelandair, áréttar í samtali við Vísi að öllu flugi Icelandair í dag hafi verið aflýst. Í gær tilkynnti flugfélagið að 24 ferðum til og frá Evrópu hefði verið aflýst og öðrum seinkað. Nú hefur hins vegar öllum Evrópuflugum, sem og ferðum til og frá Bandaríkjanna og Kanada seinni partinn, verið aflýst. Ingibjörg segir Icelandair nú vera að gera allar mögulegar ráðstafanir til að koma farþegum á áfangastað eins fljótt og auðið er. Ljóst er að röskunin muni hafa áhrif á nokkur þúsund farþega. „Við erum núna að vinna í því að setja upp ný flug. Meðal annars setjum við upp flug frá Evrópu á morgun, við köllum þetta „rescue“-flug, það er frá Amsterdam, París og London Gatwick,“ segir Ingibjörg. Þá geti verið að farþegar þurfi að bíða í einhverja sólarhringa eftir að komast á áfangastað. Slíkar tafir séu óhjákvæmilegar þegar um svo umfangsmikla röskun á flugi sé að ræða. „Við erum búin að bjóða farþegum að færa sig á önnur flug, að breyta um dagsetningar, og mörghundruð manns hafa þegið það og hafa annað hvort flýtt brottför sinni eða seinkað henni. En staðan getur breyst. Við erum líka með farþega sem koma til dæmis frá Bandaríkjunum og yfir til Evrópu, við reynum að setja þá yfir á önnur flugfélög og þá opnast í vélunum okkar. En þar sem þetta er um svo rosalegan fjölda að ræða þá getur það alveg gerst að einhverjir þurfa að ferðast einum til tveimur dögum seinna, því miður,“ segir Ingibjörg.
Fréttir af flugi Icelandair Keflavíkurflugvöllur Veður Tengdar fréttir Icelandair aflýsir fjölda flugferða vegna óveðurs á morgun Ákveðið hefur verið að aflýsa alls 24 flugferðum Icelandair til og frá Evrópu á morgun, 23. janúar, vegna slæmrar veðurspár. 22. janúar 2020 15:09 Vetrarfærð í flestum landshlutum Vetrarfærð er í flestum hlutum landsins og er slæmt ferðaveður um vestan- og norðvestanvert landið. 23. janúar 2020 06:30 Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira
Icelandair aflýsir fjölda flugferða vegna óveðurs á morgun Ákveðið hefur verið að aflýsa alls 24 flugferðum Icelandair til og frá Evrópu á morgun, 23. janúar, vegna slæmrar veðurspár. 22. janúar 2020 15:09
Vetrarfærð í flestum landshlutum Vetrarfærð er í flestum hlutum landsins og er slæmt ferðaveður um vestan- og norðvestanvert landið. 23. janúar 2020 06:30