Kýldi hvítháf þar til hann sleppti konunni Vésteinn Örn Pétursson skrifar 15. ágúst 2020 22:17 Talið er að hákarlinn sem réðst á Doyle hafi verið ungur hvítháfur. EPA/FRANCK ROBICHON
Maður sem var á brimbretti við strönd Ástralíu stökk af brimbretti sínu og kýldi hákarl, sem ráðist hafði á eiginkonu hans skammt undan, þar til hákarlinn sleppti taki af konunni. Frá þessu er greint á vef BBC. Þar segir að Chantelle Doyle hafi verið á brimbretti á Shelly-strönd í Nýju Suður-Wales í Ástralíu þegar hákarlinn réðst á hana og beit hana í hægri fótlegginn. Þá hafi eiginmaður hennar, Mark Rapley, stokkið af brimbretti sínu, tekið hákarlinn taki og kýlt hann uns hann uns hann sleppti takinu. Síðan hafi Rapley hjálpað eiginkonu sinni í land. Doyle var í kjölfarið flutt með sjúkraflugi á spítala en hákarlinn vann talsverðan skaða á hægri fótlegg hennar. Ástand hennar var þó stöðugt. Talið er að hákarlinn sem réðst á Doyle hafi verið um þriggja metra langur, ungur hvítháfur. Hvítháfar geta orðið meira en sex metra langir. Andrew Beverley hjá sjúkraflutningastofnun Nýju Suður-Wales segir að vitni að árásinni hafi veitt Doyle skyndihjálp þegar henni hafði verið komið á þurrt land.
Ástralía Dýr Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira