Lét höggin dynja á tengdasyninum með hafnaboltakylfu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. febrúar 2020 10:06 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Vísir/Hanna
Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á yngri karlmann í nóvember 2018. Samkvæmt heimildum Vísis réðst karlmaðurinn á tengdason sinn. Var maðurinn dæmdur fyrir að hafa slegið tengdasoninn mörgum sinnum með hafnaboltakylfu í höfuð og búk. Tengdasonurinn hlaut fjögurra sentimetra langan skurð vinstra megin á hnakka, mar í andliti hægra megin og lítilsháttar blæðingu á bak við hljóðhimnu hægra eyra. Mar á hálsi, brjóstkassa og baki, mar á vinstri hönd og úlnlið. Mikla bólgu á vinstri ökkla, mar á vinstra læri og grunnt sár á sköflungi hægri fótar. Tengdafaðirinn játaði sök en hann á ekki sakaferil að baki svo kunnugt sé. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að tilviljun hafi ráðið því að ekki var um verulegt varanlegt líkamstjón að ræða. Að því virtu að tengdafaðirinn játaði brot sitt greiðlega og viðurkenndi skaðabótaskyldu var refsing hans ákveðin skilorðsbundið fangelsi í átta mánuði. Krafist var tveggja milljóna króna í miskabætur. Mat dómarinn 600 þúsund krónur sem hæfilegar miskabætur en auk þess þarf hinn dæmdi að greiða lækniskostnað, sjúkranudd og fyrir viðgerð á íbúð tengdasonarins, samanlagt 540 þúsund krónur.
Dómsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Sjá meira