Slasaðist í stærðarinnar öldu í Portúgal Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2020 15:44 Nazare er vinsæll staður þegar kemur að brimbrettaiðkun en öldurnar þar geta verið gríðarlega stórar.
Íþróttamaðurinn Alex Botelho slasaðist í Portúgal í gær þegar hann lenti í stærðarinnar öldu sem brotnaði yfir honum og þeytti honum langa leið. Hinn portúgalski Botelho var að brimbrettamóti World Surf League í Nazare þegar hann lenti í öldunni og virðist hann hafa misst meðvitund. Hann var fluttur á sjúkrahús og er nú sagður í stöðugu ástandi. Mótið virkar þannig að keppendur eru dregnir út á haf á sæþotum. Það tókst þó ekki þar sem aldan greip bæði sæþotuna og Botelho og kastaði þeim hátt á loft. Rétt á eftir lenti önnur alda á Botelho og Hugo Vau, sem var á sæþotunni og þeytti þeim langa leið. Vau slasaðist ekki Myndband af atvikinu sýnir að lýsendur áttuðu sig ekki á því að Botelho hefði slasast. Í frétt CNN segir að eftir slys Botelho hafi margir kallað eftir því að WSL endurskoði að halda mót í Nazare og á öðrum sambærilegum stöðum. Það sé einungis tímaspursmál hvenær einhver deyi í beinni útsendingu. Nazare er vinsæll staður þegar kemur að brimbrettaiðkun en öldurnar þar geta verið gríðarlega stórar. Árið 2017 setti Brasilíumaðurinn Rodrigo Koxa heimsmet þegar hann brunaði á öldu sem var 24,38 metra há.
Portúgal Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Innlent Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Innlent KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ Innlent Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Innlent Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Innlent Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Erlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Fleiri fréttir Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Sjá meira