Portúgal

Portúgal

Höfuðborg: Lissabon. Mannfjöldi: 10,4 milljónir (2025). Flatarmál: 92.090 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal

Unnur Lilja Andrésdóttir hélt að hún myndi deyja í útskriftarferð sinni með FG til Portúgal fyrir tveimur árum og vill vekja athygli á því að ýmislegt geti komið upp í slíkum ferðum. Fimm menn réðust að henni á skemmtistað eitt kvöldið. Hún segir einnig mikilvægt að fólk fái rými og frelsi til að segja frá.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Refsing Ronaldos opin­beruð og hún er sér­stök

Nú er ljóst hvernig portúgalska knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo verður refsað fyrir að hafa yfirgefið herbúðir portúgalska karlalandsliðsins í knattspyrnu eftir leikinn gegn Noregi á dögunum. Hann er dæmdur í bann og sektaður.

Fótbolti
Fréttamynd

Þor­steinn Leó orðinn pabbi

Stórskyttan Þorsteinn Leó Gunnarsson og kærasta hans, Andrea Dís Skúladóttir, eru orðnir foreldrar eftir að frumburður þeirra kom í heiminn um helgina.

Lífið
Fréttamynd

Pulp Fiction-stjarna heiðurs­gestur á RIFF

Portúgalska leikkonan Maria de Madeiros, sem lék Fabienne í Pulp Fiction, verður heiðursgestur á kvikmyndahátíðinni RIFF. Á hátíðinni verður haldin sérstök stemmingssýning á Pulp Fiction í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar þar sem gestum gefst tækifæri á að smakka hamborgarana sem koma við sögu í myndinni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Bonnie Tyler vöknuð úr dái

Velska söngkonan Bonnie Tyler er vöknuð úr dái en er enn stödd á gjörgæslu í Portúgal. Tyler var flutt með hraði á sjúkrahús í Faro í byrjun maí vegna garnarofs og var henni haldið í dái til að stuðla að bata hennar.

Tónlist
Fréttamynd

Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof

Velsku tónlistarkonunni Bonnie Tyler er haldið sofandi meðan hún jafnar sig eftir bráðaaðgerð á þörmum. Tyler var flutt með hraði á spítala í Faro í Portúgal á miðvikudag vegna garnarofs og gekk aðgerðin vel fyrir sig.

Lífið
Fréttamynd

Draumur að skipu­leggja kvenna­verk­fall í Þýska­landi

Konur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss skipuleggja nú kvennaverkfall að fyrirmynd þess íslenska. Margrét Rún Guðmundsdóttir, kosningastýra Kvennalistans þáverandi og kvikmyndagerðarkona, er heiðurforseti skipulagsteymisins í Þýsklandi. Adrienne Goehler, ein skipuleggjenda, segir markmið skipuleggjenda að alheimsverkfall fari fram þann 9. mars. Hún segir þegar skipulagshópa víða um heim og auglýsir eftir einum á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kaf­bát á miðju At­lants­hafi

Portúgalskir sjóliðar og lögreglumenn stöðvuðu á dögunum eins konar kafbát sem notaður er til fíkniefnasmygls yfir Atlantshafið. Um borð fundust fjórir menn og 1,7 tonn af kókaíni en þetta er í annað sinn á árinu sem Portúgalar stöðva bát sem þennan.

Erlent
Fréttamynd

Icelandair hleypur í skarðið fyrir Play

Icelandair hefur bætt Faro í Algarve-héraði Portúgals við leiðakerfið sitt og hefur flug þangað 26. mars næstkomandi. Play hóf að fljúga þangað í apríl í fyrra og gerði þar til að félagið fór á hausinn á dögunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hrak­farir á heim­leið frá Tene: „Ferðumst innan­lands á næstunni og engar jóla­gjafir í ár“

Eftir að hafa varið fúlgum fjár í nýja flugmiða til Tenerife eftir gjaldþrot Play eru parið Sóley Edda Karlsdóttir og Arnór Gauti Brynjólfsson komin heim úr góðu fríi á eyjunni vinsælu. Gjaldþrot flugfélagsins var ekki það eina sem setti strik í reikninginn, en á heimleiðinni varð röð atvika til þess að þau munu hugsa sig um tvisvar áður en næsta ferðalag verður bókað.

Innlent
Fréttamynd

Föst í Portúgal: „Sið­laust“ að fljúga vélunum út í morgun

Hópur tuttugu Íslendinga í Lissabon í Portúgal var búinn að tékka sig inn í flug Play til Íslands þegar tíðindi bárust af falli félagsins. Einn þeirra segir aðstæðurnar einkar sérkennilegar. Henni þyki siðlaust af forsvarsmönnum félagsins að hafa sent flugvélar út í morgun rétt fyrir tilkynningu um fall félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Búast við því að Bretar viður­kenni sjálf­stæði Palestínu í dag

Búist er við því að Bretland viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag í kjölfar þess að Ísrael hefur ekki mætt þeim skilyrðum sem þeim voru sett í júlí um vopnahlé og frið á Gasa. Í frétt á vef BBC segir að búist sé við því að Keir Starmer, forsætisráðherra landsins, tilkynni um það síðar í dag.

Erlent
Fréttamynd

Bretar, Kanada­menn, Suður-Kóreubúar og Þjóð­verji meðal látinna í Lissabon

Þriggja ára drengur er meðal þeirra sem komst lífs af úr toglestarslysinu sem varð í Lissabon í gær. Þjóðarsorg var lýst yfir í landinu í kjölfar slyssins en toglestin fór af sporinu og skall utan í byggingu. Að minnsta kosti átján slösuðust og sextán eru látin. Þau látnu eru frá Portúgal, Bretlandi, Suður-Kóreu, Sviss, Kanada, Þýskalandi og Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Þjóðar­sorg lýst yfir í Portgúal

Stjórnvöld í Portúgal hafa lýst yfir þjóðarsorg en að minnsta kosti fimmtán létust þegar kláfferjan Elevador da Glória í Lissabon fór út af sporinu og skall utan í byggingu.

Erlent