Skagamenn eiga góðar minningar frá Hlíðarenda og vilja endurtaka leikinn í kvöld Anton Ingi Leifsson skrifar 18. ágúst 2020 15:00 Valur og ÍA áttu að mætast í júlí en mætast í dag. VÍSIR/DANÍEL
Valur og ÍA mætast í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Leiknum var frestað þann 31. júlí vegna kórónuveirunnar en nú getur leikurinn loks farið fram. Það verða þó eðlilega engir áhorfendur á leik kvöldsins sem fer fram á Hlíðarenda. Flautað verður til leiks klukkan 19.15 og er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Liðin hafa mæst einu sinni áður í sumar en það var einnig á Origo-vellinum. Þau mættust 3. júlí og Skagamenn gerðu sér lítið fyrir og skelltu Valsmönnum, 4-1. Viktor Jónsson skoraði fyrsta markið á 4. mínútu og þeir Tryggvi Hrafn Haraldsson og Bjarki Steinn Bjarkason komu Skagamönnum í 3-0 fyrir hlé. Klippa: Valur - ÍA 1-4 Patrick Pedersen minnkaði muninn fyrir Val í upphafi síðari hálfleiks og Steinar Þorsteinsson skoraði fjórða mark Skagamanna stundarfjórðungi fyrir leikslok. Lokatölur 4-1. Einhverjir Valsmenn hafa þá kannski haldið að þetta væri að stefna í svipað vonleysi og á síðustu leiktíð en liðið hefur heldur betur snúið við taflinu eftir það. Síðan þá hafa Valsmenn spilað sex deildarleiki. Þeir hafa unnið fimm leiki af þessum sex og tapað einum. Skagamenn hafa hins vegar einungis unnið tvo af leikjunum sex frá því að liðin mættust á Hlíðarenda. Liðið hefur tapað svo þremur leikjum og gert eitt jafntefli. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn verður einnig í beinni textalýsingu í Boltavaktinni.
Mjólkurbikarinn Valur ÍA Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira