Forsætisráðherra Írlands segir af sér Atli Ísleifsson skrifar 21. febrúar 2020 08:56 Leo Varadkar tók við embætti forsætisráðherra Írlands árið 2017. AP
Leo Varadkar sagði af sér sem forsætisráðherra Írlands í gær eftir að nýju þingi mistókst í atkvæðagreiðslum að koma sér saman um nýjan forsætisráðherra. Varadkar mun þó starfa áfram sem forsætisráðherra þar til að samkomulag næst um nýjan. Írska þingið kom saman í gær í fyrsta sinn frá því að þingkosningar fóru fram þann 8. febrúar. Á fundinum var á dagskrá að greiða atkvæði um nýjan forsætisráðherra. Enginn fulltrúa flokkanna hlaut þó nægilegan stuðning þingmanna þar sem meirihluta var krafist. Stærstu flokkarnir þrír – íhaldsflokkurinn Fine Gael, vinstri þjóðernisflokkurinn Sinn Féin og frjálslyndi flokkurinn Fianna Fáil – hlutu allir um 22 prósent atkvæða í kosningunum. Alls eiga 160 þingmenn sæti á írska þinginu, en Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, var sú sem hlaut flest atkvæði í atkvæðagreiðslum gærdagsins, eða 45 talsins. Micheal Martin, leiðtogi Fianna Fáil, hlaut 41 atkvæði en Varadkar frá Fine Gael 36. Þingfundi hefur verið frestað til 5. mars, en flokkarnir munu fram að því reyna að koma sér saman um starfhæfa stjórn.
Írland Tengdar fréttir Sinn Féin hlaut flest atkvæði en verður næst stærstur á þingi Stjórnarandstöðuflokkurinn Fianna Fáil verður stærstur á írska þinginu á kjörtímabilinu. Talningu atkvæða í írsku þingkosningunum lauk í morgun. 11. febrúar 2020 08:22 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Sjá meira
Sinn Féin hlaut flest atkvæði en verður næst stærstur á þingi Stjórnarandstöðuflokkurinn Fianna Fáil verður stærstur á írska þinginu á kjörtímabilinu. Talningu atkvæða í írsku þingkosningunum lauk í morgun. 11. febrúar 2020 08:22