Segja fyrirtæki í eigu Samherja hafa greitt fyrir kvóta í gegn um lögmannsstofur Vésteinn Örn Pétursson skrifar 19. ágúst 2020 19:35 Vísir/Sigurjón
Namibískt dótturfyrirtæki Samherja greiddi fyrir aflaheimildir með millifærslum inn á reikning tveggja lögmannsstofa. Þetta kemur fram í frétt The Namibian í dag. Þar kemur fram að greiðslurnar hafi átt að renna í verkefni sem styrkja áttu félagslega innviði í Namibíu. Því er hins vegar haldið fram að Swapo-flokkurinn, stjórnarflokkurinn í Namibíu, hafi nýtt hluta upphæðarinnar til þess að fjármagna kosningabaráttu sína. RÚV greindi frá málinu fyrst íslenskra miðla. Namibian greinir frá því að fyrirtæki í eigu Samherja hafi greitt um 51 milljón namibískra dollara, eða um 467 milljónir króna, inn á reikninga lögmannsstofanna De Klerk Horn and Coetzee og Sisa Namandje and Co. Namibian fullyrðir að fjármunirnir hafi farið í gegn um reikninga lögmannsstofanna tveggja árið 2017. Namibian hefur þá eftir minnst þremur embættismönnum innan úr sjávarútvegsráðuneyti Namibíu að greiðslurnar hafi átt að fara í samfélagsleg verkefni stjórnvalda. Þeirra á meðal voru verkefni sem áttu að styrkja jaðarsetta samfélagshópa, fyrrverandi hermenn og samfélög sem höfðu farið illa út úr þurrkum í landinu. Namibíski miðillinn kveðst þá hafa það staðfest frá ACC, lögregluembætti sem rannsakar spillingu, að fjármunirnir hafi farið í að fjármagna kosningabaráttu Swapo-flokksins eftir að hafa haft viðkomu inni á reikningum lögmannsstofanna.
Samherjaskjölin Namibía Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira