Smituðum fjölgar mest á Indlandi, átján daga í röð Samúel Karl Ólason skrifar 25. ágúst 2020 15:01 Skimun á Indlandi hefur verið aukin til muna. AP/Ajit Solanki
Yfirvöld á Indlandi tilkynntu í dag að 60.975 hafi greinst smitaðir af Covid-19 frá því í gær. Það er mesta fjölgunin í heiminum en sú hefur verið raunin á Indlandi síðust átján daga í röð. Alls hafa rúmlega 3,1 milljón manna smitast í Indlandi og rúmlega 58 þúsund dáið, svo vitað sé. Indland er því í þriðja sæti ríkja heimsins yfir fjölda smitaðra, á eftir Brasilíu og Bandaríkjunum. Í samtali við Reuters segir Giridhar Babu, sóttvarnasérfræðingur, að það kæmi honum ekki á óvart ef Indland tæki fram úr Brasilíu og Bandaríkjunum varðandi fjölda smitaðra. Sérstaklega með tilliti til þess hve mun fleiri Indverjar eru. Dauðsföll hafa þó reynst fá, hlutfallslega séð. Dánartíðnin er 1,84 prósent, samanborið við 3,4 prósent á heimsvísu. Þetta er þó miðað við opinber gögn sem fanga mögulega heildarmyndina ekki að fullu. Rajesh Bhushan, heilbrigðisráðherra Indlands, sagði í dag að skimun fyrir Covid-19 hafi aukist til muna á Indlandi og samhliða þeirri aukningu hefur hlutfall þeirra sem greinst hafa með nýju kórónuveiruna minnkað, samkvæmt Times of India. Sömuleiðis hafi þeim sem þurfa á öndunarvél að halda farið fækkandi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Indland Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira