Aðstoðarforsætisráðherra Svíþjóðar segir skilið við stjórnmálin Atli Ísleifsson skrifar 26. ágúst 2020 08:49 Isabella Lövin hefur gegnt öðru leiðtogaembættanna í flokki Græningja frá árinu 2016. Getty
Isabella Lövin, aðstoðarforsætisráðherra Svíþjóðar og annar leiðtoga sænskra Græningja, hefur ákveðið að segja skilið við stjórnmálin. Þegar Græningjar hafi valið sér nýjan leiðtoga mun hún segja af sér ráðherraembætti, en hún gegnir einnig embætti umhverfis- og loftslagsmála. „Ég tel þetta vera það besta í stöðunni fyrir mig og fyrir flokkinn,“ hefur DN eftir Lövin. Græningjar í Svíþjóð hafa alla tíð verið með tvo starfandi leiðtoga, einn karl og eina konu. Lövin segir að fyrst verði hægt að fá nýja konu til að fylla skarðið sem annan leiðtoga flokksins í lok janúar á næsta ári. Hún muni því áfram starfa í forystu flokksins þangað til. Per Bolund er hinn leiðtogi flokksins en hann gegnir nú embætti ráðherra fjármálamarkaða. Lövin tók við öðru leiðtogaembættanna hjá Græningjum árið 2016. Hún var Evróðuþingmaður á árunum 2009 til 2014 og tók þá við embætti ráðherra þróunarsamvinnumála og gegndi því til ársins 2019. Tók hún þá við embætti umhverfis- og loftslagsmála, sem og embætti aðstoðarforsætisráðherra. Jafnaðarmannaflokkurinn og Græningjar mynda nú ríkisstjórn í Svíþjóð og situr hún í skjóli stuðnings Miðflokksins og Frjálslynda flokksins.
Svíþjóð Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira