Lífið

Pamela Ander­son hefur fundið ástina á ný

Atli Ísleifsson skrifar
Pamela Anderson skildi við framleiðandann Jon Peters fyrir um sjö mánuðum.
Pamela Anderson skildi við framleiðandann Jon Peters fyrir um sjö mánuðum. Getty

Baywatch-stjarnan Pamela Anderson er byrjuð í ástarsambandi með lífverði sínum. Þetta hefur blaðið People eftir ónafngreindum heimildarmanni sem segir þau hafa verið saman allan þann tíma sem faraldur kórónuveirunnar hefur staðið yfir.

Lífvörður hinnar 53 ára Anderson heitir Dan Hayhurst og en hann nú einnig kærasti hennar.

„Hún hefur verið mjög hamingjusöm. Og þau hafa verið saman allan þann tíma sem heimsfaraldurinn hefur staðið yfir. Hún er ofurhamingjusöm og hann hefur hjálpað henni að koma heimili hennar á Vancouver-eyju í stand,“ hefur People eftir heimildarmanni sínum.

Greint var frá því fyrir um sjö mánuðum að Anderson og kvikmyndaframleiðandinn Jon Peters, 74 ára, hafi skilið eftir einungis tólf daga hjónaband. Ekki hafði tekist að senda inn alla nauðsynlega pappíra vegna hjónabandsins til þar til bærra yfirvalda áður en greint var frá skilnaðinum.

Peters þessi hefur meðal annars framleitt kvikmyndina A Star Is Born með þeim Lady Gaga og Bradley Cooper í aðalhlutverki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.