Fóru ítarlega yfir andfýlu Stefán Árni Pálsson skrifar 14. september 2020 14:31 Gauti og Arnar gáfu út fimmta þáttinn fyrir helgi.
Rappararnir Emmsjé Gauti og Arnar Freyr úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur byrjuðu nýlega með hlaðvarpið Podkastalinn. Nafnið vísar í síðdegisútvarpsþáttinn Kastalann sem strákarnir stýrðu fyrir 6 árum á KissFM. Í þættinum fara þeir um víðan völl, segja sögur af sjálfum sér og ræða það sem þeir kalla litlu málin. Nýjasti þátturinn, sá fimmti í röðinni er tekin upp snemma að morgni og verður það kveikjan að fróðlegri umræðu um þau atriði sem einkenna ákjósanlega morgunrútínu. Margir þekkja það að vera andfúlir á morgnana en ástæða þess er oftast munnþurrkur sem veldur því að bakteríur eiga auðveldara með að safnast fyrir og valda andremmu. Þótt þetta sé staðreynd eru strákarnir með sína eigin kenningu um ástæðu morgunandfýlu. Þessa kenningu má heyra í klippunni hér fyrir neðan. Kakó seremóníur/athafnir þykja sumum allra meina bót, en það er í grófum dráttum þegar hópur fólks kemur saman til að innbyrða 100% hreint kakó og taka vandlega til innra með sér. Samkvæmt sérfræðingum í þessum efnum hefur kakó í sínu tærasta formi svokölluð hjartaopnandi áhrif og er það því vinsælt hjá þeim sem áhuga hafa á andlegri velferð. Gauti las upp úr hluta af Facebook stöðuuppfærslu hjá einstaklingi sem var allt annað en sáttur við sína upplifun af slíkri athöfn sem hann sótti nýlega. Þótt málið sé alvarlegt verður því ekki neitað að það er margt heldur spauglegt í frásögn einstaklingsins, en meðal annars missti hann gjörsamlega stjórn á sínum dýrslegu hvötum og stundaði sjálfsfróun í heil fimm skipti í röð. Hér að neðan má hlusta á þáttinn í heild sinni.
Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sjá meira