Tilboð í Laugaveg 31 samþykkt af kirkjuráði Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 14. september 2020 23:51 Biskupsstofa var til húsa við Laugaveg 31 þar til hún flutti í Katrínartún síðasta haust. Vísir/Hanna
Kirkjuráð hefur samþykkt tilboð í fyrrum húsnæði Biskupsstofu við Laugaveg 31. Nokkrir fyrirvarar eru á tilboðinu, meðal annars um fjármögnun en síðar í þessum mánuði skýrist hvort af kaupunum verði. Þetta kemur fram í frétt RÚV um málið. Verð sem sett hefur verið á eignina er 570 milljónir en ekki liggur fyrir hver gerði tilboðið sem kirkjuráð samþykkti. Lengi hefur Þjóðkirkjan reynt að selja húsið við Laugaveg 31 en fyrir þremur árum síðan bárust nokkur tilboð í eignina en þeim var öllum hafnað, þar á meðal var staðgreiðslutilboð frá M3 Capital ehf. Skiptar skoðanir voru í kirkjuráði á sínum tíma, greiddu þrír atkvæði með því að tilboðinu yrði hafnað, einn sat hjá og einn greiddi á móti og vildi selja húsnæðið. Húsnæðið hefur ekki verið í notkun í um ár eftir að Biskupsstofa flutti alla sína starfsemi í Katrínartún og lá þá endanlega fyrir að selja þyrfti húsið. Í lok janúar samþykktu allir kirkjuráðsmenn að setja húsið á sölu nema Agnes Sigurðardóttir biskup sem er forseti kirkjuráðs. Húsið var svo nokkrum dögum síðar auglýst til sölu. Húsið hefur ætíð verið talið einstaklega veglegt en það er 1.540 fermetrar að stærð og eru upphleyptar myndir af gríska guðinum Hermesi á svölum hússins. Húsið var teiknað af Einari Erlendssyni húsameistara fyrir Martein Einarsson kaupmann.
Þjóðkirkjan Reykjavík Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Viðskipti erlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Sjá meira