Aðeins Víðir sótti um stöðu Víðis Vésteinn Örn Pétursson skrifar 29. september 2020 19:03 Víðir Reynisson. Vísir/Vilhelm
Guðmundur Víðir Reynisson, betur þekktur sem Víðir Reynisson, settur yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, er eini umsækjandinn um stöðu yfirlögregluþjóns almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. Víðir hefur verið settur yfirlögregluþjónn hjá almannavarnasviði síðan í upphafi kórónuveirufaraldursins hér á landi, en ekki ráðinn beint í þá stöðu. Þá kemur fram á vef lögreglunnar að fjórir umsækjendur voru um stöðu sviðsstjóra þjónustusviðs ríkislögreglustjóra. Það voru þa Árdís Rut H. Einarsdóttir lögfræðingur, Hallgrímur Tómasson lögfræðingur, Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, og Valdimar Björnsson verkfræðingur. Eins sóttu fjórir um stöðu yfirlögregluþjóns alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra. Það voru þeir Bjarni Ólafur Ólafsson, lögreglufulltrúi hjá embætti ríkislögreglustjóra, Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra og tengslafulltrúi Europol, Gylfi Hammer Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra og Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Þá var aðeins einn umsækjandi um stöðu yfirlögregluþjóns landamærasviðs ríkislögreglustjóra, Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. Á vef lögreglunnar kemur fram að fyrirhugað sé að ráðið verði í stöðurnar frá 1. nóvember næstkomandi.
Lögreglan Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira