Stöðvuðu fíkniefnaræktun í austurborginni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. október 2020 07:15 Ýmis verkefni komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm
Skömmu eftir klukkan fimm síðdegis í gær var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um umferðarslys á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar. Þar hafði verið ekið á gangandi vegfaranda en bifreiðinni var ekið af vettvangi. Sá sem slasaðist er 16 ára gamall piltur og fór faðir hans með hann á slysadeild. Ekki er vitað um meiðsl hans að því er segir í dagbók lögreglu en bíllinn fannst um miðnætti og er málið í rannsókn. Klukkan hálfníu í gærkvöld fór lögreglan síðan í húsleit í austurborginni þar sem grunur var um ræktun fíkniefna. Lagt var hald á 77 plöntur og talsvert magn af tilbúnum efnum en ekki kemur fram í dagbók lögreglu nákvæmlega um hvers konar plöntur var að ræða eða efni. Sakborningur afsalaði sér öllum búnaði til eyðingar. Laust eftir klukkan hálfþrjú í nótt barst lögreglunni síðan tilkynnt um mann með hnífa í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þegar lögregla hafði afskipti af manninum var hann búinn að leggja frá sér hnífana en hann er grunaður um brot á vopnalögum og vörslu fíkniefna. Um klukkan hálfsjö í gærkvöldi óskaði síðan vagnstjóri hjá Strætó eftir aðstoð í Mosfellsbænum þar sem maður var meðal annars búinn að skemma neyðarútgang vagnsins. Lögregla kom á vettvang og viðurkenndi maðurinn eignaspjöllin. Var honum kynnt að hann yrði kærður fyrir verknaðinn. Þá voru nokkrir ökumenn teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira