Lífið samstarf

Ráðin sem þú þarft fyrir litaval heimilisins

Slippfélagið
Sesselja Thorberg hönnuður, betur þekkt sem Fröken Fix, hefur átt í farsælu samstarfi við Slippfélagið í tíu ár.
Sesselja Thorberg hönnuður, betur þekkt sem Fröken Fix, hefur átt í farsælu samstarfi við Slippfélagið í tíu ár. Slippfélagið

„Lífið á að vera skemmtilegt. Ég nenni ekki að hafa hönnun alvarlega og þunga, hún á miklu frekar að tengjast gleði,“ segir hönnuðurinn Sesselja Thorberg, eða Fröken Fix en hún gefur góð ráð í skemmtilegum myndböndum á heimasíðu Slippfélagsins varðandi málningu og litaval. Nú er kjörið að nýta tímann heimavið og taka aðeins í gegn fyrir jólin. Fröken Fix lumar á ýmsum trixum þegar kemur að því að fríska upp á heimilið.

Trendið kemur frá umhverfinu

„Ég hef tileinkað mér ákveðnar reglur þegar kemur að því að velja lit inn á heimili og elti til dæmis ekki tískustrauma. Í myndböndunum lýsi ég meðal annars hvernig fólk getur frekar fundið sitt eigið trend út frá heimilinu sjálfu, til dæmis út frá því hverskonar birta kemur inn, er hún úr suðri eða norðri, hvernig húsgögn eru á heimilinu og hvernig umhverfi er fyrir utan gluggana,“ útskýrir Sesselja.

Fröken Fix hönnunarstudio er tíu ára í ár og hefur alla tíð átt í farsælu samstarfi við Slippfélagið.

„Ég er alltaf niðri í Slippfélagi að blanda málningu, þróa liti og tala um málningu í tengslum við mín verkefni. Okkur langaði til þess að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni tíu ára samstarfsafmælisins og þau hjá Slippfélaginu sögðu þá, „af hverju gerum við ekki eitthvað við allan þennan fróðleik og þekkingu sem vellur stanslaust upp úr þér!“ Þannig kviknaði hugmyndin að myndböndunum,“ segir Sesselja.

Hér fyrir neðan má sjá nokkur trix frá Fröken Fix sem nýtast við litaval.

Íslensk birta

Við þekkjum öll hvað það eru miklar andstæður í íslensku veðráttunni eftir árstíðum. Dimmir vetur og björt sumur gera það að verkum að það virka ekki allir litir í íslensku birtunni. Fröken Fix fræðir okkur um þá liti sem njóta sín á þessu skeri okkar.



Litirnir sem koma fram í myndbandinu Íslensk birta

Húsgögnin

Hvað þýðir að „doubla“? Það tengist því hvernig þú færð húsgögnin til að njóta sín í umhverfi sínu með litum. Fröken fix fer ítarlega yfir hvernig þú nærð að skapa réttu stemminguna heima hjá þér með málningu og litum. Snilldarráð í boði Fröken Fix!

Þessir litir koma fram í ráðleggingum varðandi litaval út frá húsgögnum





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.