Lífið

Banda­rískir stjórn­mála­menn lesa upp við­bjóðs­leg tíst um sig og eitt þeirra var frá Trump

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bernie Sanders, Elizabeth Warren og  Anthony Scaramucci voru meðal þeirra sem tóku þátt.
Bernie Sanders, Elizabeth Warren og  Anthony Scaramucci voru meðal þeirra sem tóku þátt.

Í spjallþætti Jimmy Kimmel hefur hann sjálfur haldið út reglulegum dagskrárlið sem kallast Mean Tweets en þar lesa stjörnurnar upp andstyggileg tíst sem eru til á Twitter um þau.

Á dögunum var komið að bandarískum stjórnmálamönnum á borð við Bernie Sanders, Elizabeth Warren, Ted Cruz, Andrew Yang, Anthony Scaramucci, Nancy Pelosi, Cory Booker, John Kerry, Al Franken, John Kasich, Pete Buttigieg, Adam Schiff, og Mike Bloomberg.

Fólk er ekkert feimið við það að láta stjórnmálamenn heyra það á samfélagsmiðlum og er ekkert dregið undan.

Donald Trump og Joe Biden tóku reyndar ekki þátt en það var reyndar lesið upp andstyggilegt tóst frá Trump sjálfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.