Stórleikur Ómars Inga dugði ekki til sigurs Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. nóvember 2020 16:45 Ómar Ingi í leiknum í dag. Hendrik Schmidt/Getty Images Ómar Ingi Magnússon var hreint magnaður í liði Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Því miður dugði það ekki til sigurs. Þá lék Oddur Gretarsson með Balingen-Weilstetten sem tapaði á heimavelli.
Oddur var á sínum stað í liði Balingen-Weilstetten sem tapaði með sjö marka mun fyrir Flensburg á heimavelli, lokatölur 25-32. Gísli Þorgeir lék með Magdeburg sem mátti þola tap gegn Leipzig á útivelli, lokatölur 33-29 Leipzig í vil. Ómar Ingi og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru í eldlínunni með Magdeburg. Leipzig var alltaf skrefi á undan og eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16-14, þá fór það svo að Leipzig vann fjögurra marka sigur. Lokatölur 33-29 þrátt fyrir hetjulega frammistöðu Ómars Inga ásamt mjög góðum leik hjá Gísla. Alls skoraði Ómar Ingi 11 mörk í leiknum, þar af sex úr vítum, ásamt því að gefa fjórar stoðsendingar. Kom hann því með beinum hætti að meira en helming marka Magdeburg í leiknum. Gísli Þorgeir skoraði þrjú mörk ásamt því að gefa eina stoðsendingu. Oddur og samherjar hans í Balingen-Weilstetten voru í vandræðum frá upphafi til enda í dag. Liðið skoraði aðeins níu mörk í fyrri hálfleik og var sjö mörkum undir er flautað var til hálfleiks, staðan þá 9-16. Sóknarleikur liðsins í síðari hálfleik var skárri en varnarleikurinn alveg eins og í fyrri hálfleik. Það var því enn sjö marka munur er flautað var til leiksloka, lokatölur 25-32 fyrir Flensburg. Oddur skoraði eitt mark í leiknum. Magdeburg er í 12. sæti deildarinnar og Balingen-Weilstetten í 16. sæti.
Handbolti Íslenski handboltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira