Lífið

Stjörnulífið: Aðventan fer vel af stað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf nóg að gerast hjá stjörnunum. 
Alltaf nóg að gerast hjá stjörnunum. 

Stjörnulífið þessa helgina heldur áfram að litast af hertum takmörkunum sem tóku gildi á landinu fyrir nokkrum vikum en fyrsti í aðventu var í gær og héldu margir upp á þann dag í faðmi fjölskyldunnar.

Leik- og söngkonan Selma Björns skellti sér í upplyftingu hjá Elínu Reynis ofursminku á föstudaginn og birti þessa mynd með útkomunni.

„Þegar Elín Reynis málar mann eftir 9 mánaða Covid ljótu,“ sagði Selma og ekki stóð á viðbrögðunum. Selma stýrði æfingum á jólatónleikum Siggu Beinteins um helgina en þeir fara fram á föstudaginn í Hörpu.

Sigga Beinteins birti mynd frá æfingunni á Instagram þar sem sjá má Selmu stýra gangi mála, Diddú á sviðinu auk dansara af yngri kynslóðinni og hljómsveit.

Jógvan, Ragnheiður Gröndal, Diddú og Friðrik Ómar koma fram á tónleikunum sem verða í beinni útsendingu.

Svala Björgvins fékk sér tattú með Kristjáni Einari kærasta sínum í síðustu viku. Svala fékk sér lás en Kristjáni lykil. 

 Svala var svo gestur í síðasta þætti Heima með Helga á laugardagskvöldið.

Þar var líka Ágústa Eva Erlendsdóttir en ljósmyndarinn Mummi Lú smellti af þessari mynd og vann fyrir vinkonu sína.

Fyrsti í aðventu var í gær og margir kveiktu á fyrsta kertinu. Þeirra á meðal var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Annie Mist Þórisdóttir Crossfit-kempa og Frederik Aegidius eignuðust dóttur á dögunum og sú hefur eignast vin. Hafþór Júlíus Björnsson og Kelsy Henson mættu með son sinn Storm Magna í heimsókn og Annie rifjaði upp þegar hún varð ólétt.

„Ég man enn þegar ég tilkynnti að ég væri ólétt. Þá hringdu þessi tvö og óskuðu mér til hamingju. Ég sagðist bara óska þess að þau myndu drífa sig og koma einu í ofninn. Þau svöruðu að bragði að þau væru bara nokkrum vikum á eftir okkur. Elska þetta,“ segir Annie.

Hnefaleikaæfingarnar ganga vel hjá Fjallinu. 

En það getur tekið sinn toll að æfa hnefaleika. 

Katrín Tanja Davíðsdóttir nýtti sunnudaginn í jóga. Hún sagðist hafa gleymt hve mikið jóga geri fyrir sig.

„Að einbeita sér að andardrættinum í klukkustund og hreyfileikann róar mig svo. Jarðtengir mig,“ segir Katrín. 

 Ásdís Rán skellti sér í myndatöku. 

Sunneva Einarsdóttir setti sig í stellingar fyrir góðar myndir á Instagram. 

Birgitta Líf Björnsdóttir naut sín í bústað á Þingvöllum um helgina. Eitt rauðvínsglas skemmir ekki fyrir. 

Jón Jónsson og Hafdís Björk hafa verið saman í 18 ára. 

„Við sumsé byrjuðum saman fyrir 18 árum. Lukkudísum þakka fyrir það,“ segir Jón og vísar í að Hafdís sé lykill að hamingjunni. Lykillinn sem hún rétti honum á myndinni sé þó bara herbergislykill.

Ingó Veðurguð er að bralla eitthvað og fólk á víst að fylgjast með 14. desember. Ekki laust við að Ingó minni á Danny Zyko úr Grease á þessari mynd.

Jóhanna Guðrún söng jólalög í Vikunni á RÚV á föstudagskvöldið. 

Vala Matt leit við hjá Sigmari Vilhjálmssyni og verður líklega innslag um hann í Íslandi í dag á næstunni. 

 Egill Einarsson birti mynd úr tökunum á kvikmyndinni Leynilöggan sem kemur út á næsta ári.

Kristbjörg Jónasdóttir fór í myndatöku með nýfæddan dreng þeirra Arons Einars Gunnarssonar landsliðsfyrirliða í fótbolta. Þau eru búsett í Katar.

Allir drengirnir þrír sátu fyrir á þessari mynd. 

Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon fór í göngtúr í Moskvu með besta vini sínum. 

Mennirnir á bak við þættina Rauðvín og klakkar nutu sín vel í hádegismat saman. 

Guðrún Sørtveit tók fullt af sjálfum um daginn.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.