Tíska og hönnun

„Þetta er eiginlega eins og fjársjóðsleit“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bára Hólmgeirs stofnaði Aftur og hefur hún alltaf haft umhverfið og endurvinnslu að leiðarljósi í sinni hönnun.
Bára Hólmgeirs stofnaði Aftur og hefur hún alltaf haft umhverfið og endurvinnslu að leiðarljósi í sinni hönnun. Skjáskot/Á bakvið vöruna

„Hluti af hugmyndafræðinni á bakvið Aftur er að sýna fólki fram á að það eru aðrar leiðir til að vera í tísku, starfa innan tískunnar, að endurvinna eldri fatnað til að búa til nútímafatnað,“ segir Bára Hólmgeirsdóttir hönnuður, eigandi og stofnandi Aftur.

Markmið hennar er að fá fólk til að hugsa vel um umhverfið sitt og spá í neyslunni. Hægt sé að eiga flíkur lengi með því að hugsa vel um þær. Hún fær innblásturinn úr ýmsum áttum.

„Auðvitað er maður ekki ónæmur fyrir áhrifum umhverfisins. Það eru tískustraumar sem að læðast inn í undirmeðvitundina og svo vinnst eitthvað úr því. En ég náttúrulega fæ aðalinnblásturinn úr gömlum fötum, eðlilega þar sem það er það sem ég vinn með.“

Frumkvöðull í sjálfbærni

Fyrsta myndbandið frá verkefninu Á bak við vöruna er helgað fatamerkinu Aftur, sem nú fagnar sínu tuttugasta og fyrsta starfsafmæli. Myndböndin verða alls sex talsins og verða þau öll sýnd hér á Vísi. Í myndbandinu fer Bára yfir hugmyndina á bakvið fyrirtækið Aftur. 

„Þetta er eiginlega eins og fjársjóðsleit, get ég eiginlega sagt. Þetta er bara í senn áhugamálið mitt og vinnan mín. Þetta er eiginlega allt sem að mér finnst skemmtilegt.“

Sérstaða Aftur er endurvinnsla. Frá fyrsta degi hefur hönnuðurinn verið frumkvöðull í sjálfbærni á Íslandi með umhverfisvænni fataframleiðslu í formi endurnýtingar á gömlum fatnaði (e. upcycling).

Hægt er að horfa á örmyndbandið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Á bakvið vöruna - Bára Hólmgeirsdóttir fyrir Aftur

Ungt fag í stöðugum vexti

Verkefnið Á bak við við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi sem skyggnist inn í heim frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun. Blóð stúdíó fékk styrk frá Miðborgarsjóði fyrir verkefninu en á bak við hönnunar- og markaðsstúdíóið eru þau Erna Hreinsdóttir og Ásgrímur Már Friðriksson. 

Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun.

Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.