Sigmundur Davíð segir kirkjuna hafa gengið of langt með Trans-Jesú Sylvía Hall skrifar 27. desember 2020 13:45 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. vísir/vilhelm Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gerir trúmál að umfjöllunarefni í nýjum pistli í The Spectator. Nánar tiltekið beinir hann sjónum sínum að kristinni trú og sakar kirkjuna um að koma að stefnumálum í anda róttækra sósíalista eða umhverfissinna. Það sé útséð að slíkt gangi ekki upp.
Í pistli sínum fer Sigmundur yfir stöðu kirkjunnar í nútímasamfélagi og nefnir stöðu Þjóðkirkjunnar í því samhengi, sem hann segir alvarlega. Hlutfall þeirra sem skráðir eru í Þjóðkirkjuna fari minnkandi milli ára en að hans mati þurfi kirkjan að láta í sér heyra og sækja fram á við. „Hér, líkt og í öðrum vestrænum samfélögum, hefur boðskapur kristindómsins skipt sköpum í mótun samfélagsins. Þrátt fyrir það minnist kirkjan ekkert á það oft á tíðum. Meira að segja mistekst henni oft að verja grunnstoðir kristinnar trúar og vestrænna gilda,“ skrifar Sigmundur. Þannig telur hann trúlausa fá svigrúm til þess að tjá sig um stefnu kirkjunnar. Því sé óhjákvæmilegt að þróunin sé í þá átt að fleiri fari frá kirkjunni en hann telur viðbrögðin við því ekki vænleg til árangurs. Leiðtogar kirkjunnar reyni að vera „vakandi“ (e. woke), sem oft er notað í sambandi við pólitískan rétttrúnað. „Það hefur oft leitt til þess að kirkjan komi fram stefnumálum til þess að keppast við róttækustu anga sósíaliskra eða grænna hreyfinga. Þetta er dæmt til þess að mistakast og einangrar dyggustu stuðningsmenn kirkjunnar.“ Sigmundur Davíð segir kirkjuna þurfa að ná vopnum sínum aftur.Vísir/Vilhelm Trans-Jesú og Greta Thunberg Sigmundur nefnir nokkur dæmi um verk Þjóðkirkjunnar síðastliðið ár. Meðal þess er áramótamessa síðasta ár þar sem minnst var á aðgerðasinnann Gretu Thunberg, sem var mikið í sviðsljósinu það árið og kom af stað stórri hreyfingu ungs fólks sem krafðist aðgerða í loftslagsmálum. Þótti Sigmundi eftirtektarvert hversu mikið pláss hún fékk í ræðu prestsins samanborið við Jesú Krist sjálfan. „Presturinn minntist á Jesú átta sinnum en helsta umfjöllunarefni helgihaldsins, Greta Thunberg, var nefnd níu sinnum. Ári áður, á nýársdag, var jafn oft minnst á Gretu og Jesú (tvisvar).“ Greta Thunberg er ekki það eina sem Sigmundur minnist á í pistlinum, en þar nefnir hann einnig herferð kirkjunnar í ár þar sem Jesú var trans. Herferðin var auglýsing fyrir sunnudagaskólann og átti fyrst og fremst að vera vitnisburður um það að öll væru velkomin í starfið. „Íslendingar eru nánast allir frjálslyndir hvað varðar kynhneigð og kyn en þetta var skrefi of langt. Kirkjan tapaði stuðningi; harðduglegir meðlimir og prestar voru brjálaðir. Þeim til varnar setti fyrsti kvenkynsbiskup landsins fótinn í jörðina og stöðvaði herferðina áður en skaðinn varð of mikill,“ skrifar Sigmundur. „Af hverju getur kirkjan ekki gert það sama og Jordan Peterson?“ Að mati Sigmundar þarf kirkjan að „hætta að afsaka tilvist sína“ og fagna eigin mikilvægi og afrekum. Kristin trú hafi verið í fararbroddi við að innleiða vestræna menningu og telur merkustu samfélög samtímans vera byggð upp af kristnu fólki. „Kirkjan byggði upp velferðarkerfi löngu áður en ríkisstjórnir tóku það að sér; og hún innleiddi hugmyndir jafnréttis þegar slíkar hugmyndir virtust óeðlilegar,“ skrifar Sigmundur. Nefnir hann stuðningsmenn fótboltaliða, sem verja lið sitt í samræðum við andstæðinga á jákvæðum nótum. Hann skilji ekki hvers vegna kirkjan geti ekki gert slíkt hið sama. „Við höfum færst ansi langt frá „Ég er sannleikurinn og lífið“,“ bætir hann við. Hann segir kristna trú hafa staðist tímans tönn en hún þurfi að standa með gildum sínum. Með kristinni trú væri hægt að minna fólk á mikilvægi fyrirgefningarinnar og hafnað „útilokunarkúltúr“ í samfélaginu. „Ef Jordan Peterson getur fyllt stóra sali með skilaboðum sínum um mikilvægi þess að axla ábyrgð – og byggt sjónarmið sín að miklu leyti á ritningu – hvers vegna getur kirkjan ekki gert slíkt hið sama?“
Trúmál Hinsegin Loftslagsmál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Sjá meira