Lestarsamgöngur röskuðust vegna syrgjandi svans Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2020 10:08 Lestarsamgöngur milli Kassel og Göttingen röskuðust mikið og þurfti að fella niður um tuttugu ferðir vegna fuglsins syrgjandi. Lögregla í Kassel Syrgjandi svanur olli því að lestarsamgöngur milli þýsku borganna Kassel og Göttingen röskuðust mikið í gærmorgun. Fella varð niður rúmlega tuttugu ferðir vegna fuglsins.
Svanurinn hafði komið sér fyrir við teinana í Fuldatal þar sem annar svanur hafði drepist. Neitaði svanurinn þannig að yfirgefa hlið maka síns þannig að á endanum þurfti að kalla til slökkvilið til að fjarlægja svaninn. Lögreglan í Kassel greinir frá hinu sorglega atviki á heimasíðu sinni og birtir mynd af svaninum. Segir að parið hafi verið á flugi, í könnunarleiðangri, og að annar svananna hafi í einni vindhviðunni rekist í raflínur fyrir ofan teinana og drepist. Hinn svanurinn hafi svo komið sér fyrir við hlið maka síns og gefið lítið fyrir áhuga lesta að komast leiðar sinnar. Slökkvilið var að lokum kallað á staðinn til að fjarlægja svanina, en höfðu til að byrja með ekki erindi sem erfiði. Eftir rúmlega klukkustunda stopp á lestaumferðinni var ákveðið að notast við sérstakan lyftara til að fjarlægja hræið. Hinn svanurinn er sagður ómeiddur og var að sögn lögreglu fluttur að ánni Fulda í nágrenninu. Svanir halda jafnan tryggð við maka sinn ævilangt.
Þýskaland Dýr Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Fleiri fréttir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Sjá meira