Hæsta úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ frá upphafi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. desember 2020 17:31 Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti í gær tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2021. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti í gær tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2021. Styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema rúmlega 515 milljónum króna og er um að ræða hæstu úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ frá upphafi.
Þetta kom fram í tilkynningu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Áhrif kórónufaraldursins á alþjóðlegt afreksíþróttastarf var umtalsvert á árinu sem er að líða og gerði það að verkum að fjölmargir alþjóðlegir íþróttaviðburðir var frestað eða einfaldlega felldir niður. „Afreksíþróttastarf sérsambanda ÍSÍ varð þannig fyrir miklum áhrifum og ekki var farið í verkefni með sama hætti og áætlanir gerðu ráð fyrir. Vegna þessa hefur þurft að fella niður hluta af fyrri styrkveitingu til sérsambanda vegna verkefna ársins 2020 og er þeim fjármunum nú úthlutað til sérsambanda samkvæmt reglugerð sjóðsins, en þó með þeim fyrirvara að endanlegar niðurfellingar verða endurskoðaðar þegar ársreikningar sérsambanda liggja fyrir,“ segir í tilkynningu ÍSÍ. „Framlag ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ hefur hækkað mikið á undanförnum árum og var fyrir árið 2020 að upphæð 400 milljónir króna. Framlag ríkisins vegna 2021 lækkar um átta milljónir króna frá síðustu árum og verður nú 392 milljónir króna. Afrekssjóður ÍSÍ er annars fjármagnaður með hlutdeild úr tekjum íþróttahreyfingarinnar frá Íslenskri Getspá samkvæmt ákvörðun Íþróttaþings ÍSÍ.“ „Til Afrekssjóðs ÍSÍ bárust umsóknir frá 31 sérsambandi. Að þessu sinni hljóta 30 sérsambönd styrk vegna afreksíþróttastarfs og landsliðsverkefna og er um misháar upphæðir sé að ræða. Heildarkostnaður afreksíþróttastarfs hjá þeim sérsamböndum sem sóttu um til Afrekssjóðs ÍSÍ vegna ársins 2021 nema um 2.549 m.kr. og er stuðningur sjóðsins því að meðaltali um 20 prósent af kostnaði sérsambanda, en þess má þó geta að árið 2016 var hlutfallið um 11 prósent,“ segir einnig í tilkynningunni. Hér má sjá hvernig fjármagninu er skipt niður.ÍSÍ „Á næsta ári eru margir stórviðburðir á dagskrá eins og HM í handknattleik karla sem er í upphafi árs og Ólympíuleikar og Ólympíumót fatlaðra í Tókýó. Vorið fram undan er mjög mikilvægt keppendum í íþróttagreinum þar sem lágmörk og staða á heimslista ræður því hverjir vinna sér inn keppnisrétt á leikana í Tókýó og verður spennandi að fylgjast með árangri íslenskra keppenda á næstu misserum. Sérstaklega eftir óvenjulegt ár 2020.“ Áherslur ÍSÍ varðandi afreksstyrki mótast af Afreksstefnu ÍSÍ þar sem segir: „Meginhlutverk Afrekssjóðs ÍSÍ í uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi er að styðja sérsambönd fjárhagslega og þar með íslenskt afreksíþróttafólk við að ná árangri í alþjóðlegri keppni. Forsenda styrkveitinga er að sérsambönd hafi markvissa og raunhæfa afreksstefnu, ásamt aðgerðaráætlun. Stuðningur sjóðsins felst í fjárframlögum vegna verkefna sem skulu vera fyrir fram skilgreind í aðgerðaráætlun viðkomandi sérsambands,“ segir að lokum.
Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin: Hörkuleikir í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Alcaraz heldur uppteknum hætti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Varamaður Ómars hetja Magdeburgar „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Skoraði fimmtán mörk Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Sjá meira