Ísland undanþegið útflutningsbanni ESB á lækningavörum Kjartan Kjartansson skrifar 19. mars 2020 22:40 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, ræddi við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í síma í dag. Framkvæmdastjórnin ákvað að undanskilja EFTA-ríkin útflutningsbanninu á fundi í kvöld. Vísir/Getty
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti að leiðrétta reglugerð um útflutningsbann á lækningavörum þannig að það nái ekki til EFTA-ríkjanna innan evrópska efnahagssvæðisins, þar á meðal Íslands. Að óbreyttu hefði þurft sérstakt útflutningsleyfi til að flytja inn búnað sem er talinn nauðsynlegur í baráttunni gegn útbreiðslu kórónuveirufaraldursins til Íslands. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að Evrópusambandið hafi fallist á sjónarmið Íslands og annarra EFTA-ríkja og fallið frá útflutningsbanni á tilteknum hlífðarbúnaði sem heilbrigðisstarfsfólk notar í störfum sínum. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, í síma í dag þar sem von der Leyen hét því að beita sér fyrir lausn á málinu. Í yfirlýsingu forsætisráðuneytisins vegna símtalsins segir að þær hafi einnig rætt um lokun landamæra ríkja í Evrópu. „Forsætisráðherra lagði áherslu á mikilvægi málsins og minnti á að ESB væri einn mikilvægasti samstarfsaðili Íslands. Undirstrikaði hún mikilvægi góðra samskipta og samstarfs EES-EFTA ríkjanna og Evrópusambandsins, ekki síst á þessum erfiðu tímum,“ segir í tilkynningunni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Evrópusambandið Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Sjá meira