Sætir nálgunarbanni vegna gruns um ítrekað heimilisofbeldi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 20. apríl 2020 18:34 Landsréttur mat það svo að maðurinn skyldi ekki fá leyfi til að hafa samband við konuna í gegn um síma, tölvupóst eða með öðrum leiðum. Vísir/Egill
Landsréttur staðfesti á föstudag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá 8. apríl síðastliðnum um að maður skyldi sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili vegna gruns um ítrekað heimilisofbeldi og hótanir við konu sína. Landsréttur gekk þó lengra en Héraðsdómur og bannaði manninum einnig að hafa samband við konuna í gegn um síma, með tölvupósti eða öðrum hætti. Þann 17. júlí 2019 barst tilkynning frá barnavernd vegna samskipta við manninn en hann og brotaþolinn höfðu verið boðuð í viðtal hjá barnaverndarnefnd vegna tilkynningar um heimilisofbeldi af hálfu mannsins. Konan mætti ein í viðtalið og greindi frá því að barnsfaðir hennar væri úti á landi. Eftir viðtalið hringdi maðurinn ítrekað í starfsmann barnaverndar og hótaði honum lífláti ef höfð yrðu afskipti af honum og fjölskyldu hans á ný. Þrengdi ítrekað að hálsi hennar þar til hún missti meðvitund Um tveimur vikum síðar, eða þann 8. ágúst, dvaldi konan í Kvennaathvarfinu og lagði fram kæru á hendur barnsföður síns vegna erfiðs heimilisástands g andlegs, líkamlegs og fjárhagslegs ofbeldis síðastliðin fimm ár. Það fólst meðal annars í því að þegar hún yfirgaf heimilið í kjölfar lögreglumáls og leitaði til frænku sinnar hafði maðurinn mætt heim til frænkunnar að næturlagi og heimtað að hún og börnin kæmu aftur heim. Stuttu síðar fundaði konan með barnaverndarnefnd en barnsfaðir hennar mætti þangað sem fundurinn var haldinn og sat fyrir utan í um þrjár klukkustundir. Konan leitaði í kjölfarið til Kvennaathvarfsins. Á meðan hún dvaldi þar greindi hún frá ofbeldinu sem hún hafði sætt af hálfu barnsföður síns en hann hafði meðal annars tekið skæri og haldið að hálsi hennar og hótað henni lífláti og hafði hann oft þrengt að hálsi hennar þannig að hún missti meðvitund. Hann hafði einnig skemmt eigur hennar ítrekað. Hún lýsti honum þá sem mjög afbrýðisömum og hafði hann ítrekað haft áhrif á samskipti hennar við annað fólk. Konan hafði ítrekað reynt að slíta sambandi við hann frá því þau byrjuðu saman og í kjölfar þessa lögreglumáls fékk hún neyðarhnapp. Börnin urðu vitni að ofbeldinu Konan hafði samband við lögregluna þann 6. september 2019 í miklu uppnámi og tilkynnti hún að maðurinn hafi tekið börn þeirra af leikskóla í óleyfi. Þá barst lögreglu beiðni um aðstoð frá konunni þann 2. mars síðastliðinn en þá hafði hún farið að versla ásamt barnsföður sínum, hann hafi horfið í stutta stund og hún næst séð hann í slagsmálum við frænda hennar. Þegar lögreglu bar að garði greindi hún frá því að þau væru að skilja og að frændinn hafi verið að hjálpa henni sem barnsfaðirinn var ósáttur með. Það var svo aðfaranótt 8. mars 2020 sem lögreglu barst símtal úr símanúmeri konunnar. Hún sagði ekkert í símann en grátur konu heyrðist og samtal hennar við karlmann. Vegna gruns um heimilisofbeldi fór lögreglan á vettvang. Þegar lögreglan mætti á staðinn hafði konan opnað dyrnar og varnaraðili fylgt henni. „Hún var grátandi, virtist skelfingu lostin og greint frá því að varnaraðili hefði ráðist á hana.“ Í kjölfarið var maðurinn handtekinn og var hann að sögn lögreglu drukkinn. Í ljós kom að hann og konan höfðu verið saman á árshátíð og á leið heim hafi maðurinn byrjað að tala um frænda hennar og hótað að drepa hann og alla fjölskyldu hennar. Þegar heim var komið fór konan inn í eldhús, maðurinn elti hana, tók hana hálstaki og þrengdi að. Hann sleppti svo takinu en tók upp hníf. Hún tók upp annan hníf og sagði manninum að hætta, hann lagði hnífinn frá sér og baðst afsökunar. Hún lagði þá frá sér hnífinn en maðurinn greip þá í skæri og gekk á eftir henni um íbúðina. Á meðan á þessu stóð hringdi konan í lögregluna en náði ekki að tala í símann. Konan kvaðst hafa slitið sambandinu við manninn en hann leyfði henni ekki að slíta því. Hún væri mjög meðvirk og gæfi eftir í einu og öllu. Þá sagði hún að börn þeirra hafi orðið vitni að ofbeldi minnst einu sinni, þann 20. febrúar síðastliðinn. Þá hafi hann orðið afbrýðisamur, tekið hana hálstaki, þrengt um hálsinn með belti og hrint henni í gólfið. Á heimili þeirra var lagt hald á nokkuð magn af sterum sem konan sagði í eigu mannsins.
Dómsmál Heimilisofbeldi Reykjanesbær Tengdar fréttir Falin fórnarlömb Covid Það heyrist hins vegar minna af öðrum fórnarlömbum Covid-19. 20. apríl 2020 09:30 „Konur hafa ekki sömu undankomuleið frá heimilisofbeldi“ Lilja Helgadóttir safnar fyrir Kvennaathvarfið frá London. 17. apríl 2020 11:56 Oft algjör slembilukka að konurnar séu á lífi Þúsundir eru heima hjá sér um þessar mundir. Veikir eða í sóttkví eða hræddir við það að veikjast. Við getum ekki hitt margar í einu, skólarnir eru ekki fúnkerandi sem skildi og börnin því meira heima 15. apríl 2020 10:29 Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Fleiri fréttir Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Sjá meira
Falin fórnarlömb Covid Það heyrist hins vegar minna af öðrum fórnarlömbum Covid-19. 20. apríl 2020 09:30
„Konur hafa ekki sömu undankomuleið frá heimilisofbeldi“ Lilja Helgadóttir safnar fyrir Kvennaathvarfið frá London. 17. apríl 2020 11:56
Oft algjör slembilukka að konurnar séu á lífi Þúsundir eru heima hjá sér um þessar mundir. Veikir eða í sóttkví eða hræddir við það að veikjast. Við getum ekki hitt margar í einu, skólarnir eru ekki fúnkerandi sem skildi og börnin því meira heima 15. apríl 2020 10:29