Alvarlega slasaður eftir vélhjólaslys Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. apríl 2020 14:24 Maðurinn fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Karlmaður á fimmtugsaldri var fluttur alvarlega slasaður á bráðamóttöku Landspítalans í gærkvöldi eftir vélhjólaslys á mótorkrossbrautinni í Garðaflóa við Akranes. Fyrst var greint frá málinu á vef Skessuhorns en Gísli Björnsson, yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, segir í samtali við Vísi að útkallið hafi komið klukkan hálfsjö. Sjúkraflutningamenn, lögregla og Björgunarfélag Akraness sinntu útkallinu. Maður var einn á ferð þar sem hann hafði orðið viðskila við félaga sína en þeir komu að honum og kölluðu eftir aðstoð. Ekki er þó talið að maðurinn hafi legið lengi einn á mótorkrossbrautinni eftir að hafa fallið af hjólinu. Gísli segir að björgunarsveitarmenn hafi aðstoðað við að bera manninn þar sem hann lá um 100 metra frá sjúkrabílnum sem kom á vettvang en bíllinn komst ekki nær manninum. Hinn slasaði var fluttur beint á sjúkrahús í Reykjavík með alvarlega áverka á líkama. Að sögn Gísla fór hann í aðgerð í morgun en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um líðan hans.
Akranes Samgönguslys Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira