Lífið

Fox gróf upp við­tal Jóhanns Bjarna við Kerry í um­fjöllun um flug­véla­eign fjöl­skyldunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Umrætt viðtal við tekið á Íslandi þegar John Kerry var hér á landi að taka við verðlaunum Hringborðs norðurslóða.
Umrætt viðtal við tekið á Íslandi þegar John Kerry var hér á landi að taka við verðlaunum Hringborðs norðurslóða. Skjáskot RÚV/Getty

Bandaríska fréttastofan Fox birti í gær frétt þar sem stuðst er við viðtal Jóhanns Bjarna Kolbeinssonar, fréttamanns RÚV, við John Kerry, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og núverandi erindreka Bandaríkjastjórnar í loftslagsmálum, frá þeim tíma þegar hann var staddur á Íslandi árið 2019. Í fréttinni er einkaþotueign fjölskyldu Kerry til umfjöllunar.

Í viðtalinu er Kerry spurður um hvernig það samræmist baráttunni í loftslagsmálum að fljúga um í einkaþotu, en Fox segir viðtalið ekki hafa komið fyrir augu Bandaríkjamanna áður.

Fox gróf upp viðtalið eftir að engin svör fengust frá Hvíta húsinu í tengslum við umfjöllun um eign Kerry-fjölskyldunnar á einkaþotu á sama tíma og Kerry sjálfur leiðir loftslagsbaráttu Bandaríkjastjórnar. Segir að ferð hvers farþega með einkaþotu mengi um fjörutíu sinnum meira en ef flogið er með áætlunarflugi.

Kerry var staddur hér á landi í október 2019 til að taka við verðlaunum Hringborðs Norðurslóða í Hörpu. Hlaut hann verðlaunin fyrir baráttu sína að þrýsta á bandarísk stjórnvöld að beita sér í loftslagsmálum.

Í viðtalinu spyr Jóhann Bjarni Kerry um þá ákvörðun að koma til Íslands í einkaflugi og hvort slíkt geti talist umhverfisvænn ferðamáti. „Ef maður kolefnisjafnar, er þetta eini valkosturinn fyrir mann eins og mig sem ferðast um heiminn í þeim tilgangi að hafa betur í þessari baráttu,“ sagði Kerry.

Sagði Kerry árangur hafa náðst, meðal annars með því að koma Kínverjum að borðinu. Hann sagðist meta það sem svo að hann hefði ekki tíma til að fara sjóleiðina. „Ég verð að fljúga, hitta fólk og koma hlutum í verk,“ sagði Kerry, án þess þó að svara því beint af hverju einkaflug hafi orðið fyrir valinu en ekki áætlunarflug.

„En það sem ég er að gera, nánast í fullu starfi, er að vinna að baráttunni í loftslagsmálum, og þegar allt kemur til alls, ef ég kolefnisjafna og helga lífi mínu þessari baráttu, þá ætla ég ekki að vera þeirri stöðu að þurfa að réttlæta þetta,“ sagði Kerry.

Frétt Fox hefur vakið nokkra athygli en nú þegar hafa rúmlega 12 þúsund manns skrifað athugasemdir við fréttina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.