Lára af skjánum og til Aztiq Fund Atli Ísleifsson skrifar 5. febrúar 2021 13:17 Lára Ómarsdóttir. Aztiq Fund Lára Ómarsdóttir, sem starfað hefur sem fréttamaður á RÚV, hefur verið ráðin samskiptastjóri Aztiq Fund.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum. Þar segir að Aztiq Fund hafi verið virkur langtímafjárfestir hérlendis og erlendis, meðal annars í fasteignum, lyfjaiðnaði, heilsueflingu og menningarauði. „Hlutverk Láru verður að halda utan um samskipti við hagaðila, þar á meðal yfirvöld, fjölmiðla og fjárfesta og að byggja upp vitund á fyrirtækinu. Hún mun einnig taka virkan þátt í að móta stefnu félagsins til framtíðar, en félagið hyggur á frekari fjárfestingar hérlendis og erlendis sem og að stækka fjárfestahópinn, sem nú þegar samanstendur af öflugum íslenskum og erlendum einstaklingum sem og alþjóðlegum fjárfestingarsjóðum. Lára hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlum, sem fréttamaður, vefritstjóri og dagskrárgerðarkona bæði í útvarpi og sjónvarpi og býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á starfi fjölmiðla. Í starfi sínu hefur hún meðal annars vakið athygli fyrir umfjöllun um félagsleg málefni og náttúru Íslands. Lára lauk B.ed gráðu í íslensku og stærðfræði árið 2004. Áður starfaði hún meðal annars sem innkaupastjóri og sem framkvæmdastjóri knattspyrnufélags. Hún hefur skrifað eina bók, Hagsýni og hamingja,“ segir í tilkynningunni. Á heimasíðu Aztig kemur fram að Aztiq Fund sé virkur langtímafjárfestir hérlendis og erlendis, meðal annars í fasteignum, lyfjaiðnaði, menningarauði og samfélagsverkefnum. Fjárfestingahópurinn Aztiq Fund samanstandi af öflugum íslenskum og erlendum einstaklingum sem og alþjóðlegum fjárfestingarsjóðum. Stærstu eignir Aztiq fund séu í Alvogen, Alvotech og fasteignafélaginu Sæmundi. Þá muni Aztiq Fund vera stór hluthafi í Þorpinu – vistfélagi í samstarfi við Reykjavíkurborg og stendur að uppbyggingu hátækniseturs í Vatnsmýri.
Vistaskipti Fjölmiðlar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira