Lífið

Þessar rándýru Superbowl auglýsingar hittu í mark

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikarar, íþróttamenn og tónlistarmenn fara á kostum í auglýsingunum.
Leikarar, íþróttamenn og tónlistarmenn fara á kostum í auglýsingunum.

Tampa Bay Buccaneers vann sinn fyrsta NFL-titil í átján ár og þann annan frá upphafi með því að vinna Kansas City Chiefs 31-9 á heimavelli sínum í Tampa Bay í nótt þegar leikurinn um Ofurskálina, Superbowl, fór fram.

Um er að ræða einn vinsælasta sjónvarpsviðburð hvers árs í Bandaríkjunum og hefur skapast sú hefð að stórfyrirtæki frumsýnir nýjar auglýsingar í hálfleik og í leikhléum.

Auglýsingarnar eru vægast sagt dýrar en sjónvarpsstöðin CBS var með sjónvarpsréttinn af leiknum. Fyrir þrjátíu sekúndur þurfti fyrirtækin að greiða 5,5 milljónir dollara eða því sem samsvarar rúmlega 710 milljónir íslenskra króna.

Miðillinn Vulture hefur tekið saman umfjöllun um helstu auglýsingarnar í útsendingunni í gærkvöldi og má sjá þær allar hér að neðan.

Wayne’s World bræðurnir hittust aftur í auglýsingu fyrir Uber Eats.

Leikarinn Jason Alexander lenti í erfileikum í auglýsingu fyrir Tide.

Leikarinn Michael B. Jordan fer á kostum í auglýsingu fyrir Amazon en verið var að auglýsa nýja útgáfu af Alexu sem er hátlari sem hægt er að tala við, spyrja spurninga, skipa henni fyrir og fleira. 

Þekkt lag með Dolly Parton kemur við í auglýsingu fyrir Squarespace. 

Ashton Kutcher, Mila Kunis og Shaggy fara á kostum í auglýsingu fyrir Cheetos. 

John Travolta býr til flott TikTok myndband í auglýsingu fyrir garðyrkjutækjafyrirtækið Scotts and Miracle-Gro en fjölmargar stjörnur koma einnig við sögu í auglýsingunni.

Serena Williams, Anthony Davis, og Peyton Manning með leiksigur í auglýsingu fyrir Michelob Ultra.

Matthew McConaughey er flatur í auglýsingu fyrir Doritos. 

Amy Schumer með fullan ísskáp af mæjónesi.

Bud Light og Avengers í eina sæng.

Lenny Kravitz flottur í auglýsingu fyrir Stella Artois.

Will Ferrell, Kenan Thompson, og Awkwafina ætla fara nokkuð illa með Norðmenn ef marka má auglýsingu frá General Motors. 

John Cena kom fram í auglýsingu fyrir Mountain Dew en hér má sjá enn fleiri auglýsingar frá gærkvöldinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.