Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Karl Lúðvíksson skrifar 9. febrúar 2021 08:52 Mynd: Jóhann Davíð Snorrason Þá hefur tölfræðin fyrir september og október í Eystri Rangá verið tekin saman en við höfum birt áður fyrir júní, júlí og ágúst.
Þá hefur tölfræðin fyrir september og október í Eystri Rangá verið tekin saman en við höfum birt áður fyrir júní, júlí og ágúst. Á þessu metsumri 2020 er mjög áhugavert að sjá hvernig veiðin hefur dreifst milli mánaða og veiðisvæða. September gaf í heildina 1.115 laxa og mesta veiðin var á svæði þrjú sem gaf 208 laxa en þar voru Hrafnaklettar langgjöfulastir enda veiðistaðurinn loðinn af laxi. Svæði eitt gaf síðan 174 laxa og Bátsvaðið var þar gjöfulast en Rimahylur var líka ansi drjúgur. Oktíber var aðeins veiddur til 20. þess mánaðar eins og reglur gera ráð fyrir og var veiðin 746 laxar á 12 stangir. Svæði sex gaf bestu veiðina eða 178 laxa og svæði þrjú og sjö þar rétt fyrir aftan með 126 og 120 laxa. Heildartölfræðina fyrir veiðina má finna inn á www.kolskeggur.is
Stangveiði Mest lesið Frostastaðavatn frábært fyrir unga veiðimenn Veiði Níu laxar á fyrsta degi í Eystri Rangá Veiði Stórlöxunum fjölgar í Elliðaánum Veiði Nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Fín sjóbleikjuveiði í Hraunsfirði Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði 30 laxa dagur í Jöklu Veiði Selja veiðileyfi til styrktar félagi krabbameinssjúkra barna Veiði Veiðin að glæðast eftir rigningar Veiði Laxinn mættur í Langá Veiði