Suðrænt ævintýri á Reykjanesi Northern Light Inn 10. febrúar 2021 09:30 Northern Light Inn hafa getið sér gott orð fyrir norðurljósasýn. Nú býður hótelið upp á suðræna helgarpakka. Spennandi þemahelgar á Northern Light Inn flytja ferðaþyrsta íslendinga hálfa leið í huganum á suðrænar slóðir.
Hvað ef hægt væri að upplifa suðræna töfra rétt utan við Reykjavík? Vísir mælir með spennandi helgarpökkum á Northern Light Inn. „Við viljum gera gott úr ástandinu og koma til móts við ferðaþyrsta Íslendinga sem komast ekki til útlanda,“ segir Friðrik Einarsson eigandi Northern Light Inn en hótelið býður nú upp á sérstakar þemahelgar þar sem gestir geta gleymt frosti og snjó og notið suðrænna strauma í mat og drykk. Hótelið er staðsett í Svartsengi, Grindavík, steinsnar frá Bláa lóninu og ekki nema stuttur bíltúr frá Reykjavík. Kokkarnir á La Primavera töfra fram ítalska matarmenningu eins og hún gerist best á ítalskri þemahelgi dagana 26. til 28. febrúar. Ítölsk matargerð eins og hún gerist best Dagana 26. til 28. febrúar verður gestum boðið til Ítalíu. Pakkinn inniheldur tvær nætur og hefst helgin á ítölsku hlaðborði á föstudagskvöldinu. Á laugardagsmorgun býður gesta glæsilegt morgunverðarhlaðborð með ítölsku ívafi áður en fólk heldur út í daginn. Gestir geta heimsótt Grindavík, kíkt í búðir og fengið sér hressingu eða kíkt í Bláa Lónið. Fallegar gönguleiðir eru um svæðið og meðal annars ævintýraleið á Þorbjörninn. Fjölda fallegra gönguleiða er að finna í nágrenni hótelsins. „Við brjótum upp daginn með ýmsum skemmtilegum uppákomum og ber þar hæst glæsileg kynning á ítölskum vínum. Einnig verður boðið upp á ítalskt kaffi og biscotti og um kvöldið munu kokkar frá hinum rómaða veitingastað La Primavera töfra fram dýrindis kræsingar á ítalska vísu eftir að gestir hafa notið Happy hour á barnum,“ segir Friðrik. Mið-austurlönd lifna við í höndum matreiðslumanna Sumac sem töfra fram girnilega austurlenska rétti. Mið-austurlenskt þema verður dagana 5. til 7. mars. Mið-austurlönd beint í æð Mið-austurlönd verða þemað dagana 5. til 7. mars. Þá munu gestir upplifa Mið-austurlönd með sínum exótíska og spennandi matarstíl. „Við verðum í samstarfi við Kryddhúsið og hinn sívinsæla veitingastað Sumac þá helgina. Kryddhúsið mun aðstoða okkur við kvöldverðarhlaðborð á föstudeginum og bjóða uppá fróðleik um töfraveröld kryddsins sem er svo ómissandi hluti af Mið- austurlöndum. Gestir fá einnig vínkynningu frá Mekka Wines & Spirits þar sem farið verður yfir hvaða vín passa vel við kryddaðan austurlenskan mat og laugardagskvöldið munu matreiðslumenn Sumac reiða fram töfrandi kræsingar Mið - austurlanda. Glæsileg aðstaða á Deluxe herbergjum Northern Light Inn. Við erum gríðarlega ánægð og þakklát með að fá til liðs við okkur, eina af vinsælustu veitingastöðum Reykjavíkur og lofum því að gestir okkar ná að endurhlaða batteríin yfir þessar helgar. Sökum sóttvarnaaðgerða munum við takmarka fjöldann við 50 manns og eina sem við getum ekki græjað er að þótt að gestir okkar skreppi erlendis um stund með okkur þá er ekki í boði að kaupa „tollinn“ þegar snúið er aftur heim til Íslands. Notalega fer um gestina á Northern Light Inn. Hér er hægt að panta ævintýrahelgi.
Ferðalög Lífið Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Lífið Salka Sól látin fara Lífið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira