Sjáðu draumamark Kristínar sem tryggði HK eins marks sigur á FH Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. mars 2021 15:25 Kristín Guðmundsdóttir reyndist hetja HK í dag. Vísir/Bára Fyrsta leik dagsins í Olís deild kvenna er lokið. HK marði þá stigalaust botnlið FH með eins marks mun, lokatölur 23-24 í Kaplakrika í Hafnafirði í dag. Sigurmarkið var stórglæsilegt og kom í síðustu sókn leiksins.
Liðin voru í tveimur neðstu sætum deildarinnar fyrir leik dagsins, FH enn án stiga en HK með sjö stig þar fyrir ofan. Undir lok leiks stefndi einfaldlega í að leiknum myndi ljúka með jafntefli enda staðan þá 23-23 eftir hörkuleik. HK tók leikhlé og hafði nokkrar sekúndur til að ná skoti. Gamla brýnið Kristín Guðmundsdóttir stökk upp lengst fyrir utan punktalínuna og hamraði boltanum í netið. Kristín var eflaust góða 12-13 metra frá marki er hún stökk upp. Sjáðu stórkostlegt sigurmark Kristínar Guðmundsdóttur er HK vann eins mark sigur á FH í Olís deild kvenna í dag pic.twitter.com/ajCkzylFgi— Stöð 2 Sport (@St2Sport) March 6, 2021 Magnað mark og vægast sagt grátlegur endir fyrir heimastúlkur sem voru hársbreidd frá sínu fyrsta stigi í vetur. Sigríður Hauksdóttir var markahæst í liði HK með sjö mörk á meðan Kristín skoraði sex. Hjá FH var Emilía Ósk Steinarsdóttir markahæst með átta mörk og Hildur Guðjónsdóttir kom þar á eftir með sjö mörk. FH er sem fyrr í áttunda og neðsta sæti deildarinnar án stiga en HK hefur nú jafnað Hauka að stigum með níu stykki. Aðeins eru tvö stig í Val sem situr í þriðja sæti deildarinnar.
Handbolti Íslenski handboltinn Olís-deild kvenna HK FH Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira