Bayern Munchen er í ansi góðum málum eftir 3-0 sigur á FC Rosengård í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir byrjaði á bekknum hjá Bayern á meðan Glódís Perla Viggósdóttir var í miðri vörn sænska liðsins.
Linda Dallmann kom Bayern yfir á níundu mínútu og tuttugum mínútum síðar tvöfaldaði Klara Buehl forystuna.
Þriðja markið skoraði Lineth Beerensteyn á 69. mínútu og forysta Bæjara ansi vægleg fyrir síðari leikinn í Svíþjóð í næstu viku.
Karólína sat allan tímann á bekknum hjá Bayern en Glódís Perla lék allan leikinn fyrir Rosengård.
🌟 HOMEWIN!!! 🌟
— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) March 24, 2021
Nächste Woche genauso! 🦾#MiaSanMia #FCBayern #UWCL pic.twitter.com/H5vX0xNkqk