„Mér fannst hann svo flottur, mér fannst hann eins og sjóræningi. Með húfuna skakka, flottan svip og sat á stein og reykti og spýtti að sjóarasið.“
Þegar þeir Tomas og RAX voru á gangi ásamt tveimur vinum Tomasar mættu þeir hópi af nunnum. Þegar þær gengu í burtu lét Tomas út úr sér
„Það er ekki auðvelt að reyna við þessar.“

Honum til mikillar furðu heyrðu þær í honum og sneru strax við. Vinir hans voru fljótir að forða sér svo Tomas stóð einn eftir.
Frásögnina í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. Þar segir ljósmyndarinn meðal annars frá því þegar hann reyndi að finna Tomas aftur nokkrum árum síðar. RAX Augnablik eru örþættir og Tomas og nunnurnar er rúmar þrjár mínútur.
Þetta er ekki fyrsti kvennahópurinn sem verður á vegi Ragnars Axelssonar. Í þættinum Maríurnar í Lombardinha, segir hann frá skemmtilegum konum sem hann kynntist á Ítalíu.
RAX hefur áður sagt sögur frá Færeyjum í þáttunum RAX Augnablik, enda hefur hann ferðast oft þangað og var meðal annars í mánuð þar að mynda fyrir frímerki þeirra. Hér fyrir neðan má finna nokkrar færeyskar sögur sem vakið hafa athygli síðustu mánuði hér á Vísi.
Myndirnar af bræðrunum Friðriki og Sófusi voru einstaklega skemmtilegar. RAX hitti bræðurna í heimsókn sinni í þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997.
Í Fugley kynntist ljósmyndarinn einstökum karakterum eins og Árna Dal, Oliviu, Guttormi og Símoni. RAX leið eins og hann væri staddur í leikriti.

Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.