Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. október 2026 15:30 Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Hildur Björnsdóttir við verðlaunaafhendingu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar. Vísir/Anton Brink Ragnheiður Harpa Leifsdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir handritið að ljóðabókinni Deig, sem kemur út í dag. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða fyrr í dag.
Verðlaunin hafa verið veitt af Reykjavíkurborg frá árinu 1994 til minningar um skáldið Tómas Guðmundsson en frá árinu 2004 hafa þau verið veitt fyrir óútgefið handrit að ljóðabók. Ragnheiður Harpa með ljóðabókina Deig. Alls bárust 78 handrit í samkeppnina í ár en Ragnheiður Harpa varð hlutskörpust og fær verðlaunafé sem nemur einni milljón króna. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er rithöfundur og sviðslistakona sem hefur starfað á fjölbreyttum vettvangi lista og bókmennta. Fyrsta ljóðabók hennar, Sítrónur og náttmyrkur, kom út árið 2019 og sú næsta, Urðarflétta, árið 2022. Hún hefur jafnframt samið verk fyrir leikhús og útvarp, unnið að fjölbreyttum sviðslistaverkefnum og skrifað barnabókina Eyju og sólarsteininn. Ragnheiður Harpa er ein sex skálda í höfundahópnum Svikaskáldum, sem hafa meðal annars sent frá sér ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd, Ég er fagnaðarsöngur og Nú sker ég netin mín. Skáldsaga hópsins, Olía, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021. Svikaskáldin Ragnheiður Harpa, Fríða, Þóra, Melkorka og Sunna Dís.Saga Sigurðardóttir Í ljóðabókinni Deig beinir Ragnheiður Harpa sjónum sínum að hráefni mannlegrar tilveru, hversdeginum og þeim töfrastundum sem leynast í hinu hversdagslega. Fortíð og framtíð mætast í ljóðmyndum þar sem minningar flæða upp úr skúffum, framtíðin birtist á silfurmynd og leitað er að griðastöðum, jafnt innan veggja heimilisins sem utan þess. Deig kemur út í dag hjá Mál og menningu. „Ljóðin í Deig eru í senn fallegir, djúpir og kjarnyrtir textar sem fjalla á yfirborðinu um hversdagsleika fjölskyldulífsins en vísa einnig til stærri sammannlegri veruleika þar sem dauði, draumar og hið dularfulla ráða ríkjum. Rauði þráðurinn í gegnum verkið eru fjölskyldubönd og þá sérstaklega móðurhlutverkið sem deigið í titli bókarinnar verður að eins konar myndlíkingu fyrir. Í Deig er lesandanum ekki aðeins boðið upp í ljóðrænt ferðalag, heldur einnig skynrænt, þar sem blóðappelsínur, hvítlaukur og kóríander verða að hráefnum í margra rétta, bragðmikilli veislu lífsins,“ sagði um Deig í umsögn dómnefndar. Í dómnefnd Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2026 sátu Þorvaldur S. Helgason, formaður, Friðgeir Einarsson og Gyða Sigfinnsdóttir. Sólin skein skært við Höfða í dag.Vísir/Anton Brink
Bókmenntir Reykjavík Ljóðlist Tengdar fréttir Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Þórdís Dröfn Andrésdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2025 fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins. Upphæð verðlaunafjár nemur einni milljón króna og kemur bókin út hjá bókaútgáfunni Benedikt. 27. október 2025 15:18 Natasha S. hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Rithöfundurinn Natasha S. hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Máltaka á stríðstímum sem kemur í verslanir í dag. 17. október 2022 14:27 Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira
Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Þórdís Dröfn Andrésdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2025 fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins. Upphæð verðlaunafjár nemur einni milljón króna og kemur bókin út hjá bókaútgáfunni Benedikt. 27. október 2025 15:18
Natasha S. hlýtur bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Rithöfundurinn Natasha S. hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Máltaka á stríðstímum sem kemur í verslanir í dag. 17. október 2022 14:27