Byssumenn brutust inn til Smallings í nótt og ógnuðu fjölskyldu hans Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. apríl 2021 12:30 Chris Smalling hefur leikið með Roma undanfarin tvö tímabil. epa/CARMELO IMBESI Þrír menn, vopnaðir byssum, brutust inn til Chris Smalling, leikmanns Roma, í nótt. Hann var heima líkt og eiginkona hans og tveggja ára sonur þeirra. Smalling gat ekki leikið með Roma þegar liðið mætti Ajax í seinni leiknum í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær. Leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli sem dugði Roma til að komast í undanúrslit Evrópudeildarinnar. Þar mætir Roma Manchester United, gamla liðinu hans Smallings. Ítalskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að þrír vopnaðir menn hefðu brotist inn á heimili Smallings í miðborg Rómar, vakið hann og fengið hann til að opna peningaskáp. Innbrotsþjófarnir höfðu á brott Rolex-úr og ýmsa dýra skartgripi. Eiginkona Smallings hringdi á lögregluna um klukkan fimm í nótt. Innbrotsþjófarnir eru enn ófundnir. Smalling kom til Roma frá United haustið 2019. Hann kom fyrst á láni en ítalska félagið keypti hann svo í fyrra. Smalling lék með United í tæpan áratug. Roma er í 7. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Torino á sunnudaginn.
Smalling gat ekki leikið með Roma þegar liðið mætti Ajax í seinni leiknum í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær. Leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli sem dugði Roma til að komast í undanúrslit Evrópudeildarinnar. Þar mætir Roma Manchester United, gamla liðinu hans Smallings. Ítalskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að þrír vopnaðir menn hefðu brotist inn á heimili Smallings í miðborg Rómar, vakið hann og fengið hann til að opna peningaskáp. Innbrotsþjófarnir höfðu á brott Rolex-úr og ýmsa dýra skartgripi. Eiginkona Smallings hringdi á lögregluna um klukkan fimm í nótt. Innbrotsþjófarnir eru enn ófundnir. Smalling kom til Roma frá United haustið 2019. Hann kom fyrst á láni en ítalska félagið keypti hann svo í fyrra. Smalling lék með United í tæpan áratug. Roma er í 7. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Torino á sunnudaginn. Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ „Sigurinn nærir“ „Margt jákvætt í leik okkar að þessu sinni“ Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Héldu út manni færri þar til átta mínútur voru eftir Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola Modric tekur slaginn áfram í Mílanó Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands